Hoppa yfir valmynd

Gæðamál og vottanir

Öryggisvottun ISO/IEC 27001

Nr. skírteinis IS 723974 (uppfært í maí 2024)

Þann 19. maí 2020 hlaut Fjarskiptastofa öryggisvottunina ISO/IEC 27001 sem er stjórnkerfi upplýsingaöryggis.

ISO/IEC 27001 er alþjóðlegur staðall fyrir upplýsingaöryggiskerfi og sá algengasti á heimsvísu. Vottunin er viðurkenning á því að upplýsingatæknikerfum FST er stýrt á þann máta sem tryggir trúnað, réttleika og tiltækileika þeirra  gagna sem Fjarskiptastofa vinnur með hverju sinni.

Mikilvægi öryggis í upplýsingatækni hefur stóraukist á undanförnum árum og starfsfólk og stjórnendur Fjarskiptastofu leggja metnað í standast nútímakröfur.

Jafnlaunavottun ÍST 85

Nr. skírteinis EQ 724081 (uppfært í maí 2024)

Þann 24. mars 2021 hlaut Fjarskiptastofa jafnlaunavottun í fyrsta sinn skv. IST 85 jafnlaunastaðlinum.

Umhverfisvottun ISO 14001

Nr. skírteinis EMS 797522

Fjarskiptastofa lauk fimmta græna skrefinu með umhverfisvottun skv. ISO 14001 staðlinum þann 25. mars 2024.