Númer
1/2023
Heiti
Alþjónustuframlag til Neyðarlínunnar ohf.
Dagsetning
27.03.2023
Málsaðilar
Málaflokkur
Alþjónusta
Lagagreinar
- gr. Kostnaður við alþjónustu
- gr. Réttur til alþjónustu á viðráðanlegu verði
Reifun
Samkvæmt ákvörðun PFS nr. 9/2020 var lögð sú alþjónustukvöð á Neyðarlínuna ohf. að veita síma- og internetþjónustu til lögheimila og vinnustaða í sérstökum tilvikum. Hér er fyrst og fremst átt við lögheimili og vinnustaði sem geta mögulega misst símasamband við lokun almenna talsímakerfisins (PSTN) sem nú stendur yfir, þ.e. staðföng sem ekki búa við nægilega gott farnetsamband. Í umræddri ákvörðun er gert ráð fyrir að Neyðarlínan ohf. geti fengið bættan útlagðan kostnað við að uppfylla kvöðina með alþjónustuframlagi. Þann 21. mars 2023 barst FST umsókn um alþjónustuframlag að upphæð 9.908.777 fyrir uppsetningu á fjarskiptateningum á árinu 2022. Með ákvörðun FST nr. 1/2023 var umsókn Neyðarlínunnar ohf. samþykkt.
Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð