Númer
16/2012
Heiti
um breytingar á gjaldskrá Íslandspósts innan einkaréttar, afsláttarfyrirkomulagi og viðskiptaskilmálum
Dagsetning
24.05.2012
Málsaðilar
Málaflokkur
Gjaldskrá í alþjónustu
Lagagreinar
- gr. Íslenska ríkið skal tryggja öllum landsmönnum...
- gr. Skilgreining markaða.
Reifun
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) ákvörðun hefur samþykkt nýja verðskrá Íslandspósts innan einkaréttar frá og með 1. júlí 2012. Auk þess yfirfór stofnunin forsendur Íslandspósts að því er varðar afsláttarfyrirkomulag fyrir svokallaðan magnpóst. Þessu tengdu var lagt fyrir Íslandspóst að gera tilteknar breytingar á viðskiptaskilmálum félagsins vegna umræddra breytinga.
Helstu breytingar á verðskrá Íslandspósts og viðskiptaskilmálum eru þær að verðskrá fyrir almenn bréf (A þjónusta, dreifing daginn eftir) fer úr 97 kr. í kr. 120. Hins vegar á almenningur nú kost á að kaupa svokallaða B þjónustu sem felur í sér dreifingu innan 3ja daga frá póstlagningu, en gjaldið fyrir slíka þjónustu mun verða 103 kr. Fyrirkomulag af þessu tagi, þ.e. að hægt er að kaupa mismunandi þjónustustig, hefur verið við lýði í flestum nágrannalöndum okkar um nokkurt skeið.
Verðskrá fyrir magnpóstsaðila hefur einnig tekið nokkrum breytingum frá því sem nú er. Sett eru tvö grunnverð eftir því hvaða þjónusta keypt er hverju sinni, þ.e. A þjónusta eða B þjónusta. Grunnverð fyrir A þjónustu verður 88 kr. og fyrir B þjónustu 71 kr. Þessu til viðbótar fá magnpóstsaðilar afslætti í samræmi við afhent magn í hvert sinn og á grundvelli heildarviðskipta yfir ákveðið viðmiðunartímabil. Breytingarnar í heild fela í sér um 8% hækkun á gjaldskrá innan einkaréttar miðað við vegið meðaltal.
Tengt efni
Viðauki A, samráðsskjal PFS, dags. 9. desember 2011 (PDF)
Viðauki B, svör við athugasemdum hagsmunaaðila (PDF)
Viðauki C, yfirferð PFS á útreikningum Íslandspósts á grunnverðum í gjaldskrá innan einkaréttar (PDF)
Viðauki D, svör við athugasemdum vegna skilmálabreytinga (PDF)
Nýir Viðskiptaskilmálar (PDF)