Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir

Númer

9/2022

Heiti

Fjarskiptastofa samþykkir heildsölugjaldskrá Mílu fyrir aðgang af afriðlabúnaði

Dagsetning

29.09.2022

Málsaðilar

Málaflokkur

Kostnaðargreining

Lagagreinar

  1. gr Eftirlit með gjaldskrá

Reifun

Með ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 9/2022 samþykkir stofnunin kostnaðargreiningu Mílu ehf. á heildsöluaðgangi að afriðlabúnað (48 V) í tækjarýmum Mílu ehf.

Kostnaðargreiningin leiðir fram mánaðarverð fyrir aðgang að afriðlabúnaði í aðstöðu Mílu víða um land. Í greiningunni er reiknað endurstofnverð á þeim búnaði sem notaður er við veitingu þjónustunnar. Þá er fjárfestingar- og rekstrarkostnaður reiknaður í samræmi við mismunandi kostnað eftir staðsetningu hýsingar á búnaðinum og tekur gjaldskráin mið af því. Miðað er við sömu gjaldskrárflokka og gert er í gjaldskrá fyrir aðstöðuleigu.

Í ákvörðuninni er forsendum og aðferðum við greiningu á kostnaði lýst nánar. Í viðauka I er lýsing á því hvernig vegið meðaltal fjármagnskostnaðar fyrir árið 2021 er ákvarðað. Hin nýja heildsölugjaldskrá Mílu ehf. tekur gildi þann 1. nóvember 2022 en Míla ehf. hefur þegar sent út tilkynningu um gildistökuna með tilskildum fyrirvara.

Frumdrög að ákvörðun um heildsölugjaldskrá fyrir aðgang að afriðlabúnaði fór í innanlandssamráð sem stóð frá 10. febrúar til 3. mars 2022. Þá fóru uppfærð drög að ákvörðun í aukasamráð þann 7. júlí og stóð það til 28. júlí 2022. Engar athugasemdir bárust í samráðunum. Þann 29. ágúst sl. voru ákvörðunardrögin send Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og öðrum eftirlitsstofnunum á EES-svæðinu til samráðs. Samráðinu lauk 29. september 2022. ESA gerði engar athugasemdir við ákvörðunardrögin.