Hoppa yfir valmynd

Ákvörðun Fjarskiptastofu vegna öryggisatviks hjá Sýn hf. í júlí 2022

Fréttasafn
07. júlí 2023

Ákvörðun Fjarskiptastofu vegna öryggisatviks hjá Sýn hf. í júlí 2022

Ákvörðun Fjarskiptastofu markar lok á rannsókn stofnunarinnar á öryggisatviki sem upp kom í miðlægu símkerfabúnaði Sýnar hf. í júlí 2022. Öryggisatvikið hafði í för með sér alvarlegt rof og truflun á fastlínuþjónustu og farsímaþjónustu félagsins og langa bilanagreiningu. Þjónusturofið og truflunin stóð samanlagt í um 180 mínútur og varðaði um 200 þúsund notendur, en um 7.000 notendur urðu fyrir áhrifum.
    
Rannsókn stofnunarinnar laut að því hvort Sýn hf. hafi uppfyllt þær kröfur sem ákvæði fjarskiptalaga kveða á um varðandi stjórnskipulag netöryggismála hjá fjarskiptafyrirtækjum. 

Rannsókn Fjarskiptastofu leiddi í ljós veikleika í öryggisskipulagi Sýnar hf. sem lýsti sér í því að breytingar sem Sýn hf. gerði á miðlægum símkerfabúnaði í júlí 2022 voru ekki framkvæmdar í samræmi við samþykkt breytingastjórnunarferli félagsins. Orsakaði það alvarlegt rof og truflun á þjónustu félagsins. Það er hins vegar mat Fjarskiptastofu að eftir að öryggisatvikið kom upp hafi starfsmenn Sýn hf. fylgt viðbragðsáætlun félagsins.

Það var einnig niðurstaða rannsóknarinnar að brotalöm er á ferli Sýnar er varðar tilkynningar til viðskiptavina félagsins um öryggisatvik sem þetta, sem og að þjónustuviðmið tilkynninga til viðskiptavina félagsins var ekki fullnægjandi.
        
Þá kom í ljós að Sýn hf. vanrækti tilkynningarskyldu sína til netöryggissveitar Fjarskiptastofu vegna öryggisatviksins.
 
Í ákvörðun Fjarskiptastofu er því komist að þeirri niðurstöðu að Sýn hf. hafi brotið gegn ákvæðum þágildandi fjarskiptalaga um öryggi fjarskipta og tilkynningu til netöryggissveitar Fjarskiptastofu, sbr. IX. kafla fjarskiptalaga, og reglna nr. 1222/2007, um virkni almennra fjarskiptaneta.

Ákvörðun Fjarskiptastofu vegna öryggisatviks hjá Sýn hf. í júlí 2022