Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2022 komin út
Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla Fjarskiptastofu fyrir árið 2022 komin út
Tvisvar á ári safnar Fjarskiptastofa upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur stofnunarinnar í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir Fjarskiptastofu í nágrannalöndum okkar gefa út.
Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir árið 2022. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði.
Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi Fjarskiptastofu.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka og 9 undirflokka sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum:
- farsímanet
- breiðband
- IPTV
- fastanet
Meðal helstu tölulegu upplýsinga um íslenska fjarskiptamarkaðarins árið 2022 má nefna:
Þróun fyrri ára innan talsíma heldur áfram þar sem bæði notendum og mínútum fækkar milli ára og er fækkun viðskiptavina og mínútna bæði hjá heimilum og fyrirtækjum. Áskrifendum að heimasíma fækkar um 7,4% milli ára og mínútum fækkar um 14,1%. Síminn og Vodafone eru stærstu fyrirtækin á markaði fyrir heimasíma með rúm 85% hlutdeild í lok árs 2022.
Heildarfjöldi farsímaáskrifta fjölgar milli ára eða um 5,0%. Fjölgun er í samningsbundnum áskriftum en fyrirfram greiddum áskriftum fækkar hins vegar. Fjöldi mínútna úr farsímum var 1.144 millj. mínútna á árinu 2022 en var árið á undan um 1.137 millj. mínútna og er fjölgun mínútna milli ára því aðeins um 0,6%.
M2M kortum á farsímaneti fækkaði milli ára eða úr 1.179.191 í 724.095 kort í lok árs 2022 en þetta eru farsímakort þar sem tæki eru í sjálfvirkum samskiptum við önnur tæki sem á ensku kallast Machine-to-Machine eða M2M.
Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast þótt dregist hafi úr aukningunni en hún var um 23% milli ára og eins og undanfarin ár er aukningin í tengslum við innleiðingu á 4G og 5G. Í farsímanetum er hlutfallslega meira gagnamagn notað í símum en í öðrum tækjum sem eru eingöngu fyrir gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum eða 4G og 5G netbúnaði.
Internettengingum fjölgar lítillega milli ára, en mikil aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum, í lok árs 2022 voru ljósleiðaratengingar rúm 82% allra internettenginga og er fjöldi ljósleiðaratenginga nú um 117 þús. tengingar.
Heildargagnamagn á fastaneti jókst um rúm 12% milli ára og er um 90% gagnamagnsins vegna niðurhals en 10% vegna upphals.
Áskrifendur með sjónvarp yfir IPTV voru 79.968 í lok árs 2022, en voru 84.798 árið á undan og hefur því fækkað um tæp 6% frá árinu á undan.
Velta á fjarskiptamarkaði jókst á árinu 2022, tekjur af heimasíma og aðrar tekjur fóru lækkandi en tekjur af fastaneti, farsímarekstri, gagnaflutningi og internetþjónustu, sjónvarpsþjónustu og annarri fjölmiðlun farið hækkandi.
Fjárfesting á fjarskiptamarkaði er aðallega í fastaneti, m.a. vegna lagningar ljósleiðara og farsímarekstri.
Tafla með helstu stærðum á fjarskiptamarkaði.
Tölfræðiskýrslan í heild - Ásamt skýrslunni er birt Excel skjal með bakgrunnsupplýsingum skýrslunnar í töflum og myndum.