Samráð við ESA um endurskoðun gjaldskrár Mílu fyrir aðstöðuleigu
Samráð við ESA um endurskoðun gjaldskrár Mílu fyrir aðstöðuleigu
Þann 18. október s.l. sendi Fjarskiptastofa ákvörðunardrög varðandi kostnaðargreiningu Mílu ehf. á gjaldskrá fyrir aðstöðuleigu í húsum og möstrum, sem og gjaldskrá fyrir rafmagnsnotkun, til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA.
Stofnunin hyggst samþykkja kostnaðargreiningu Mílu ehf. Útreikningar á kostnaði vegna leigu á aðstöðu í húsum og möstrum eru í samræmi við ákvarðanir PFS nr. 41/2010 og nr. 11/2014 varðandi kostnaðargreiningu Mílu á verðskrá fyrir aðstöðuleigu.
Í meðfylgjandi drögum er forsendum og aðferðum við greiningu á kostnaði lýst nánar. Í viðauka I er lýsing á því hvernig vegið meðaltal fjármagnskostnaðar er ákvarðað og í viðauka II er síðan fyrirhuguð gjaldskrá Mílu birt i heild sinni.
Frumdrög að ákvörðun um heildsölugjaldskrá fyrir hýsingu í tækjarýmum og möstrum auk rafmagnskostnaðar fór í innanlandssamráð sem stóð frá 29. júní til 20. júlí 2021. Engar athugasemdir bárust í samráðinu.
Ákvörðunardrögin eru nú send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs í dag með vísan til 28. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu og 7. gr. rammatilskipunar ESB nr. 2002/21/EB. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur Fjarskiptastofa formlega tekið ákvörðun nema fram komi óskir frá ESA um að Fjarskiptastofa dragi ákvörðunardrögin til baka. Ekki er gert ráð fyrir því að innlendir hagsmunaaðilar geri athugasemdir við ákvörðunardrögin að þessu sinni.
Drög að ákvörðun Gjaldskrá Mílu fyrir aðstöðuleigu til birtingar.pdf
Viðauki I WACC fyrir árið 2018.pdf
Viðauki II Gjaldskrá.pdf
Draft decision on Mila tariff for access to facilities (Public).pdf
Appendix I WACC calculations for 2018 (Public).pdf
Appendix II Tariff (Public).pdf