Hoppa yfir valmynd

Neyðarlínan ohf. fær greitt framlag vegna þeirrar skyldu að koma upp fjarskiptatengingum fyrir síma- og internetþjónustu í sérstökum tilvikum

Fréttasafn
21. mars 2022

Neyðarlínan ohf. fær greitt framlag vegna þeirrar skyldu að koma upp fjarskiptatengingum fyrir síma- og internetþjónustu í sérstökum tilvikum

Samkvæmt ákvörðun PFS nr. 9/2020 var lögð sú alþjónustukvöð á Neyðarlínuna ohf. að veita síma- og internetþjónustu til lögheimila og vinnustaða í sérstökum tilvikum.

Þann 1. október 2020 hófst fyrsti áfangi Símans við lokun PSTN kerfisins. Um er að ræða gamla rásaskipta talsímakerfið sem þjónað hefur landsmönnum síðast liðna áratugi. Á heimasíðu Símans er að finna upplýsingar um hvernig verkefnið er áfangaskipt, en síðasti áfanginn er áætlaður þann 1. júlí 2022.

Við lokun á talsímakerfinu var fyrirséð að nokkur heimili myndu bætast í þann hóp heimila þar sem gera þurfi sérstakar ráðstafanir til að koma upp fjarskiptasambandi við. Á þetta einkum við þar sem ekki er búið að leggja ljósleiðara eða farsímasamband er ekki nægjanlega gott. Í þeim tilvikum þarf að tryggja tengingu, t.d. yfir örbylgju, gervihnött eða með því að gera ráðstafanir til að móttaka og magna farsímamerki, ef þess hefur verið kostur.

Í útnefningu Neyðarlínunnar ohf. er gert ráð fyrir að fyrirtækið geti fengið bættan útlagðan kostnað við að koma á símasambandi við þau lögheimili og fyrirtæki sem mögulega detta úr fjarskiptasambandi við lokun PSTN kerfisins.  

Í byrjun mars 2022 barst Fjarskiptastofu umsókn um alþjónustuframlag að upphæð 2.152.301 vegna uppsetningu á níu fjarskiptatengingum á árinu 2021, þar sem lögheimili höfðu misst símasamband vegna lokunnar á PSTN kerfi Símans.

Með ákvörðun FST nr. 4/2022 var umsókn Neyðarlínunnar ohf. samþykkt. Í viðauka með ákvörðuninni má sjá hvar á landinu viðkomandi tengingar eru sem og kostnað við hverja einstöku tengingu.

Áfangar Símans við lokun PSTN kerfisins (PDF).