Hoppa yfir valmynd

Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla PFS fyrir árið 2020 komin út

Fréttasafn
27. apríl 2021

Íslenskur fjarskiptamarkaður í tölum - Tölfræðiskýrsla PFS fyrir árið 2020 komin út

Tvisvar á ári safnar Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) upplýsingum frá skráðum fjarskiptafyrirtækjum hér á landi um ýmsar stærðir í rekstri og þjónustu á sviði fjarskipta. Upp úr þeim tölum vinnur stofnunin tölfræðiskýrslur sem sýna upplýsingar um helstu stærðir og fyrirtæki á íslenskum fjarskiptamarkaði. Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf og auka gagnsæi á þessum markaði og eru skýrslur PFS í samræmi við þær skýrslur sem systurstofnanir PFS í nágrannalöndum okkar gefa út. 

Skýrslan sem nú er birt sýnir tölfræði um fjarskiptamarkaðinn fyrir árið 2020. Hún inniheldur tölulegar upplýsingar um helstu þætti á markaðnum og samanburð við stöðuna á árunum á undan. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, föstum internettengingum og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði. 

Hægt er að skoða gögnin frá hinum ýmsu sjónarhornum á Gagnatorgi PFS.
Gagnatorginu er skipt í 4 yfirflokka; farsímanet, breiðband, IPTV og fastanet og þar undir eru 9 flokkar sem hægt er að skoða útfrá t.d. tímabilum og þjónustuveitendum.

Meðal helstu tölulegu upplýsinga um íslenska fjarskiptamarkaðinn árið 2020 má nefna: 

Fjöldi áskrifenda með heimasíma heldur áfram að fækka milli ára eða um tæp 8% og mínútum fækkar um rúm 4%. Fjöldi mínútna úr heimasíma í farsíma fjölgar hins vegar milli ára og líklega má rekja það til fjarvinnu vegna áhrifa kórónuveirunnar. Síminn og Vodafone eru stærstu fyrirtækin á markaði fyrir heimasíma með um 91% hlutdeild í lok árs 2020.  

Heildarfjöldi farsímaáskrifta stendur í stað milli ára en fjölgun er í samningsbundnum áskriftum en fyrirfram greiddum áskriftum fækkar hins vegar. Fjöldi mínútna úr farsímum var um 1.124 millj. mínútna á tímabilinu en var á árinu 2019 um 932 millj. mínútna og er aukningin því um 21% milli ára sem er töluvert umfram aukningu fyrri ára. Fjarvinna vegna kórónuveirunnar er líkleg skýring á þessari aukningu sbr. fjölgun mínútna úr heimasíma í farsíma. Skilaboðum (SMS og MMS) fjölgar en þó aðallega MMS sem fjölgar um rúm 16%. Gagnamagn á farsímaneti heldur áfram að aukast milli ára eða um 49% eins og undanfarin ár í tengslum við innleiðingu á 4G. Í farsímanetum er hlutfallslega meira gagnamagn notað í símum en í öðrum tækjum sem eru eingöngu fyrir gagnanotkun, t.d. spjaldtölvum eða 4G netbúnaði.  

Internettengingum fjölgar þegar á heildina er litið, en mikil aukning er í ljósleiðaratengingum samhliða fækkun í xDSL tengingum. Í lok árs 2020 voru ljósleiðaratengingar um 69% allra internettenginga. 

Heildargagnamagn á fastaneti jókst um tæp 27% milli ára og er um 87% gagnamagnsins vegna niðurhals en 13% vegna upphals. 

Áskrifendur með sjónvarp yfir IPTV voru 88.109 í lok árs 2020, en voru 91.815 í lok árs 2019 og hefur því fækkað um 4% milli ára og er þetta þriðja árið í röð sem notendum með IPTV fækkar. 

Velta á fjarskiptamarkaði stóð í stað á árinu 2020. Tekjur af heimasíma og farsíma fóru lækkandi en tekjur af fastaneti, gagnaflutningi og internetþjónustu, sjónvarpsþjónustu og annarri fjölmiðlun farið hækkandi. 

Fjárfesting á fjarskiptamarkaði er aðallega í fastaneti, m.a. vegna lagningar ljósleiðara. 

Helstu stærðir á fjarskiptamarkaði má sjá í töflunni hér fyrir neðan sem einnig er að finna í skýrslunni sjálfri. 

Tölfræðiskýrslan í heild
Ásamt skýrslunni er birt Excel skjal með bakgrunnsupplýsingum skýrslunnar í töflum og myndum