Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
10/2021
Heiti
Krafa Símans um aðgang að efni Viaplay
Dagsetning
23.12.2021
Málsaðilar
Málaflokkur
Fjölmiðlar
Lagagreinar
  1. gr. Lögsaga yfir fjölmiðlaveitum sem miðla myndefni.
  1. gr. Ráðstafanir gagnvart fjölmiðlaveitum sem miðla myndefni og heyra undir lögsögu annarra EES-ríkja.
  1. gr. Flutningsréttur á myndefni.
Reifun

Fjarskiptastofu (FST) barst erindi frá Símanum með kröfu um aðgang að tilteknu myndefni sem sænska efnisveitan Viaplay hefur sýningarrétt á. Var krafan byggð á 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011. Efnisveitan Viaplay er skráð fjölmiðlaveita í Svíþjóð. Var það niðurstaða Fjarskiptastofu, að fengnu áliti Fjölmiðlanefndar, að flutningsreglur íslenskra fjölmiðlalaga næðu ekki til efnisveitu sem er skráð fjölmiðlaveita utan lögsögu Íslands. Var kröfu Símans því vísað frá. 

Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð