Eyvör NCC-IS
Fjarskiptastofa leiðir nú hæfnisetur í netöryggi EYVÖR NCC-IS
Fjarskiptastofa hefur nú tekið við forystu fyrir Eyvör NCC-IS, hæfnisetri í netöryggi á Íslandi, og fagnar þeim breytingum sem kynntar voru á fundi innviðaráðherra með stjórn, stýrihópi og fagráði Eyvarar NCC-IS. Meðal helstu breytinga er skipun nýrrar stjórnar, undirritun uppfærðra úthlutunarreglna fyrir netöryggisstyrki og ákvörðun um að hæfnisetrið heyri formlega undir Fjarskiptastofu.
Fjarskiptastofa telur þetta eðlilegt og jákvætt framhald í þróun netöryggismála á Íslandi. Með því að sameina krafta stofnunarinnar og Eyvöru NCC-IS skapast tækifæri til að styrkja getu samfélagsins til að bregðast við í sífellt flóknara netöryggisumhverfi.
Eyvör NCC-IS, hæfnisetur í netöryggi, er hluti af evrópsku netöryggisneti á vegum ECCC (European Cybersecurity Competence Centre). Setrið er samstarfsverkefni ráðuneytisins, Fjarskiptastofu, Rannís, Háskóla Íslands, Háskólans í Reykjavík og Auðnu og hefur það að markmiði að efla hæfni, rannsóknir og nýsköpun á sviði netöryggis. Hafa þessir aðilar hlotið beina styrki frá Evrópusambandinu til að efla getu háskólanna á sviði netöryggis, þekkingaruppbyggingu á netöryggi í íslensku samfélagi, stuðla að auknu samtali stjórnvalda og atvinnulífs sem og auka norrænt samstarf á þessu sviði.
Markmið Eyvarar NCC-IS er þannig bæði að styrkja rannsóknir, menntun og fræðslu á sviði netöryggis, sem og að auðvelda aðgengi íslenskra aðila að alþjóðlegum sóknarfærum. Meðal verkefna hennar er umsjón með netöryggisstyrkjum sem veittir eru til verkefna sem stuðla að aukinni hæfni og getu á þessu sviði.
Fjarskiptastofa leiðir nú starfsemi Eyvarar NCC-IS og hefur það hlutverk að samhæfa aðgerðir og stuðla að öflugri netöryggismenningu á Íslandi. Hefur hæfnisetrið Eyvör NCC-IS þegar hafið úthlutun styrkja til verkefna sem efla netöryggi.
Ný stjórn Eyvarar NCC-IS, skipuð til tveggja ára, er eftirfarandi:
- Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu (formaður)
- Aðalsteinn Þorsteinsson, skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu
- Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, forseti samfélagssviðs HR
- Sigurður Magnús Garðarsson, forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs HÍ
- Sigurður Óli Sigurðsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs Rannís
Stýrihópur
Hópur aðila frá öllum samstarfsaðilunum. Stýrihópurinn fundar einu sinni á mánuði til að ræða verkefni sem eru í vinnslu innan í Eyvör NCC-IS. Haldnar eru fundargerðir eftir hvern fund og samþykktar af fundarmönnum. Staða á verkefnum og styrktarbeiðnir eru teknar fyrir á fundum stýrihópsins.
Ráðgefandi hópur
Hópur innan íslenska netöryggissamfélagsins, gefur ráð til Eyvarar NCC-IS um þarfir, stefnur og þróun í kringum netöryggi. Þessir aðilar geta ráðið til sín erlenda sérfræðinga til skrafs og ráðagerða. Hópnum er stýrt af Auðnu og hittist hann a.m.k. tvisvar á ári.
Fjarskiptastofa hlakkar til að leiða áframhaldandi uppbyggingu Eyvarar NCC-IS og efla netöryggisvitund, getu og nýsköpun í íslensku samfélagi.
Athugið að unnið er að nýjum vef fyrir EYVÖR NCC-IS sem fara um í loftið á næstu vikum
Hlekkir á ýmislegt efni tengt NCC-IS
- Eyvör NCC-IS á LinkedIn
Fylgdu Eyvör NCC-IS á LinkedIn - Verkefnastjóri Eyvör NCC-IS
Fjarskiptastofa hefur ráðið Hrannar Ásgrímsson sem verkefnastjóra Eyvarar – hæfnisseturs Íslands í netöryggi. Eyvör er hluti af Netöryggissviði hjá Fjarskiptastofu og hefur það hlutverk að efla þekkingu og hæfni á sviði netöryggis á landsvísu. - Upplýsingar um Eyvör NCC-IS hjá Stjórnarráðinu
Eyvör NCC-IS mun markvisst styðja við íslenska aðila úr atvinnulífinu, rannsóknasamfélaginu og hinu opinbera í að efla rannsóknir og auka hæfni, þekkingu og þróun á sviði netöryggis. Eyvör NCC-IS mun m.a. sjá um rekstur netöryggisstyrkja og auðvelda íslenskum hagsmunaaðilum aðgengi að alþjóðlegum sóknarfærum. - ECCC - Hæfnisetur Evrópu í netöryggi
Markmið ECCC er að auka netöryggisgetu og samkeppnishæfni Evrópu og vinna með neti hæfnissetra (NCC) í hverju landi að því að byggja upp sterkt netöryggissamfélag. - NCC - Samhæfingarstöðvar í Evrópu
Net innlendra samhæfingarmiðstöðva (NCC) samanstendur af 27 miðstöðvum, einni frá hverju aðildarríki. Markmið þeirra er að efla rannsóknir og samkeppnishæfni á sviði netöryggis í Evrópu.
Styrkir
- Eyvör NCC-IS Netöryggisstyrkur
Hægt er að sækja um styrk til að efla netöryggi og varnir - Úthlutunarreglur vegna netöryggisstyrks hjá Eyvör NCC-IS
Netöryggisstyrkur samkvæmt reglum þessum skal veita fjármagni til að styrkja verkefni á sviði netöryggis sem stuðla að eflingu netöryggis. - Digital Europe Programme (DEP)
Styrkumsóknir eru fjármögnunartækifæri sem stofnanir og aðilar Evrópusambandsins bjóða upp á. - Horizon Europe Programme
Styrkumsóknir eru fjármögnunartækifæri sem stofnanir og aðilar Evrópusambandsins bjóða upp á.