- Fjarskiptastofa
- Fjarskiptainnviðir
- Númer og vistföng
Númer og vistföng
Fjarskiptastofa sér um úthlutun númera, númeraraða og vistfanga sem notuð eru í fjarskiptaþjónustu við samtengingu sjálfstæðra fjarskiptaneta.
Úthlutun á númerum og vistföngum
Fjarskiptastofa úthlutar númerum, númeraröðum og vistföngum til rekstrarleyfishafa á Íslandi.
VERKLAGSREGLUR til samræmingar og skýringa á reglum Fjarskiptastofu nr. 590/2015 um skipulag, úthlutun og notkun númera, númeraraða og vistfanga á sviði fjarskipta
Íslenska númeraplanið
Númeraraðir 000 0000 - 999 99 99 (E.164)
Íslenska númeraskipulagið - E.164 - (Uppfært 13. maí 2022)
Númer fyrir samfélagsþjónustu
Á EES svæðinu gildir samræmd notkun á símanúmerum sem frátekin eru fyrir samfélagsþjónustu samkvæmt reglum Evrópusambandsins.
Þetta eru fimm 6 stafa númer sem byrja á 116 (+ þrír tölustafir). Áskilið er að símtöl í þjónustuna skulu vera gjaldfrjáls.
Fjarskiptastofa sér um að úthluta þessum númerum.
Úthlutun á öðrum númerum og vistföngum
Fjarskiptastofa úthlutar númerum og vistföngum, sem notast milli neta, m.a. eftirfarandi:
International Signalling Point Codes (ISPC-kóðar)
Mobile Network Codes (MNC-kóðar)
Maritime Mobile Service Identities (MMSI- númer, Excel skjal)
Inmarsat Mobile Number, (IMN númer)
Issuer Identification Numbers, (IIN-númer)
Data Network Identification Codes, (DNIC-kóðar)
Administrative Management Domains, (ADMD-vistföng)
National Signal Point Code (NSPC, Excel skjal)
SMS-stuttnúmer
MS þjónustuveitendur geta fengið úthlutað sérstökum SMS stuttnúmerum fyrir þjónustu sína. Þannig hafa þeir yfir að ráða sínum eigin númerum en þurfa ekki að selja þjónustu sína í gegn um númer sem eru á vegum farsímafyrirtækjanna.
SMS stuttnúmer sem hefur verið úthlutað
SMS stuttnúmer Fyrirtæki
1901 Inkasso ehf.
1902 Smálán ehf.
1909 Micro Finance ehf.
1910 Síminn hf.
1917 Hraðpeningar
1919 Kredia
Sótt um númer og eða kóða
Sækja um númer og/eða kóða (Rafrænt umsóknareyðublað)