Hoppa yfir valmynd

Stefnur, vottanir og gæðamál

Framtíðarsýn Fjarskiptastofu

Fjarskiptastofa er framsækinn samstarfsaðili um þróun öruggs stafræns samfélags og eflingu samkeppni

  • Framtíðarsýn stjórnvalda er að Íslands verði í fremstu röð með trausta og örugga innviði  og framúrskarandi þjónustu. Fjarskiptastofa gegnir þar mikilvægu hlutverki við að annast stjórnsýslu og eftirlit með framkvæmd fjarskipta og netöryggismála.

  • Fjarskiptastofa vill vera framsækinn samstarfsaðili við þróun og uppbyggingu öruggs stafræns samfélags enda hvílir virkni nútímasamfélaga á öflugum og öruggum fjarskiptakerfum og stöðugri nýsköpun á því sviði

Gildi Fjarskiptastofu

Gildi Fjarskiptastofu ramma inn vinnu stofnunarinnar og eru starfsmönnum stuðningur í forgangsröðun og áherslum hvort sem það snýr að samskiptum innan og utan stofnunarinnar. Gildin eiga sér stoð í bæði hlutverki og framtíðarsýn þar sem þau eru hvatar sem styðja við framtíðarsýn.

Við sýnum af okkur HEILINDI með því

  • að bera virðingu fyrir ytri sem innri hagsmunaaðilum

  • að standa undir því trausti sem okkur er sýnt

  • að sýna samfélagslega ábyrgð

Við sýnum FAGÞEKKINGU okkar með því

  • að veita faglega þjónustu

  • að ástunda fagmennsku í öllum okkar vinnubrögðum

  • að ástunda stöðuga þekkingaröflun

Við sýnum FRAMSÆKNI með því

  • að leita nýrra leiða og lausna

  • að vera samvinnu- og samstarfsfús

  • að hafa skýra framtíðarsýn