- Fjarskiptastofa
- Um Fjarskiptastofu
- Stefnur, vottanir og gæðamál
- Gæðamál og vottanir
Gæðamál og vottanir
Öryggisvottun ISO/IEC 27001
Nr. skírteinis IS 723974 (uppfært í maí 2024)
Þann 19. maí 2020 hlaut Fjarskiptastofa öryggisvottunina ISO/IEC 27001 sem er stjórnkerfi upplýsingaöryggis.
ISO/IEC 27001 er alþjóðlegur staðall fyrir upplýsingaöryggiskerfi og sá algengasti á heimsvísu. Vottunin er viðurkenning á því að upplýsingatæknikerfum FST er stýrt á þann máta sem tryggir trúnað, réttleika og tiltækileika þeirra gagna sem Fjarskiptastofa vinnur með hverju sinni.
Mikilvægi öryggis í upplýsingatækni hefur stóraukist á undanförnum árum og starfsfólk og stjórnendur Fjarskiptastofu leggja metnað í standast nútímakröfur.
Jafnlaunavottun ÍST 85
Nr. skírteinis EQ 724081 (uppfært í maí 2024)
Þann 24. mars 2021 hlaut Fjarskiptastofa jafnlaunavottun í fyrsta sinn skv. IST 85 jafnlaunastaðlinum.
Umhverfisvottun ISO 14001
Nr. skírteinis EMS 797522
Fjarskiptastofa lauk fimmta græna skrefinu með umhverfisvottun skv. ISO 14001 staðlinum þann 25. mars 2024.