Röng og ófullnægjandi upplýsingagjöf Mílu
- gr. Eftirlitsúrræði og viðurlög
- Stjórnvaldssektir
Við framkvæmd markaðsgreinina horfir Fjarskiptastofa til þróunar á samkeppnisaðstæðna á fjarskiptamarkaði til nánustu framtíðar. Við gagnaöflun í markaðsgreiningu á heimtauga- og bitastraumsmörkuðum kallaði Fjarskiptastofa eftir upplýsingum frá Mílu um áformuð kaup á ljósleiðarnetum sem byggð hefðu verið upp af öðrum aðilum. Þrátt fyrir ítrekuð samskipti og leiðbeiningar um eðli þeirra upplýsinga sem beðið væri um komu engin svör frá Mílu. Nokkrum vikum eftir að svarfrestur gagnaöflunarinnar var liðinn tilkynnti Míla stofnuninni um kaup á ljósleiðaraneti Skaftárhrepps. Fjarskiptastofa taldi vera tilefni til að rannsaka aðdragandann að þessum viðskiptum og kallaði eftir afritum af öllum samskiptum Mílu við sveitarfélagið um þetta.
Við skoðun á samskipunum kom í ljós að Míla hafði formlega lýst yfir áhuga á kaupviðrum í apríl 2023 og lagt fram formlegt kauptilboð í júlí sama ár. Fjarskiptastofa taldi upplýsingar um umrædd viðskipti ótvírætt falla undir gagnbeiðni um kaupáform sem Míla hafði ekki svarað. Ákvað stofnunin að leggja stjórnvaldssekt á Mílu fyrir brot á upplýsingaskyldu að upphæð 3.000.000 kr.