Númer
10/2021
Heiti
Gjaldskrá Íslandspóst fyrir pakka innanlands innan alþjónustu.
Dagsetning
30.06.2021
Málsaðilar
Engir skráðir málsaðilar
Málaflokkur
Alþjónusta
Gjaldskrá í alþjónustu
Lagagreinar
- gr. Gjaldskrá alþjónustuveitanda
Reifun
Póst- og fjarskiptastofnun birtir ákvörðun PFS nr. 10/2021, „Gjaldskrá Íslandspóst fyrir pakka innanlands innan alþjónustu.“
Í ákvörðuninni er m.a. komist að þeirri niðurstöðu að núgildandi gjaldskrá fyrir pakka innan alþjónustu sé í samræmi við 2., sbr. 3. mgr. 17. gr. laga nr. 98/2019.
Með stoð í 7. mgr. 17. gr. laga um póstþjónustu nr. 98/2019 gerir Póst- og fjarskiptastofnun hins vegar þær kröfur:
Að Íslandspóstur ohf. endurskoði skiptingu og úthlutun kostnaðar í kostnaðarlíkani félagsins og skal endurmatinu vera lokið fyrir 1. september 2021.
Jafnframt fer stofnunin fram á þær breytingar sem eru nauðsynlegar á pakka gjaldskrá félagsins vegna breytinga Alþingis á 2. mgr. 17. gr. laga um póstþjónustu, sbr. 4. gr. laga nr. 76/2021 verði lokið sem fyrst. Vísar PFS í því samandi m.a. til kostnaðar ríkisins af alþjónustu, nefndarálit þingsins þar sem fjallað er um afleiðingar af fyrri lagasetningu og orðalags 13. gr. laga nr. 76/2021.
Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð