Númer
13/2020
Heiti
Útnefning Íslandspósts ohf. sem alþjónustuveitanda á sviði póstþjónustu um land allt
Dagsetning
11.12.2020
Málsaðilar
Engir skráðir málsaðilar
Málaflokkur
Alþjónusta
Lagagreinar
- gr. Val á þjónustuveitanda sem skylt er að veita alþjónustu
Reifun
Póst- og fjarskiptastofnun hefur útnefnt Íslandspóst ohf. sem alþjónustuveitanda á sviði póstþjónustu um land allt. Fyrirtækið hefur veitt póstþjónustu innan alþjónustu á grundvelli bráðabirgðaákvörðunar nr. 29/2019, sem gildir til 31. desember 2020.
Ákvörðunin kemur í framhaldi af samráði sem viðhaft var við hagsmunaaðila.
Útnefningin gildir frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2030. Heimilt er þó að gera breytingar á einstökum ákvæðum útnefningarinnar ef forsendur hafa breyst verulega eða breytingar hafa orðið á lögum og reglugerðum.
Þjónusta innan alþjónustu
Eftirfarandi þjónusta fellur undir alþjónustu samkvæmt ákvörðun PFS:
- Bréfum upp að 2 kg. (Letter single piece)
- Magnpósti upp að 50 gr. (Bulk letters)
- Pökkum upp að 10 kg. (innanlands)
- Pökkum upp að 20 kg. (til og frá landinu)
- Ábyrgðarsendingum (Registered items)
- Tryggðum sendingum (Insured items)
- Blindrasendingar upp að 2 kg.
Dreifing póstsendinga, sem falla undir alþjónustu skulu fara fram að lágmarki tvo daga í viku til einstaklinga sem hafa fasta búsetu, sbr. lög um lögheimili og aðsetur. Á sama hátt skal bera út póstsendingar til lögaðila sem hafa fasta atvinnustarfsemi í viðkomandi húsnæði. Heimilt er að stöðva dreifingu póstsendinga til þeirra aðila (einstaklinga eða fyrirtækja) þar sem merkingar eða staðsetning bréfakassa er ekki í samræmi við ákvæði laga og reglugerða á hverjum tíma.
Þá skal Íslandspóstur haga starfsemi sinni í samræmi við þær skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist samkvæmt gildandi alþjóðasamningum á sviði póstmála.
Virk og óvirk markaðssvæði
Í ákvörðuninni er einnig að finna skilgreiningu á virkum og óvirkum markaðssvæðum, þ.e. svæði sem póstrekendur myndu annað hvort ekki veita þjónustu og/eða þjóna með öðrum hætti en reglur um alþjónustu kveða á um. Miðað við þær forsendur sem PFS gengur út frá í sinni ákvörðun er skipting á milli virkra og óvirkra svæða tilgreind í viðauka I. við ákvörðunina og í viðauka II. má sjá skiptinguna eftir póstnúmerum. Er heildarskiptingin eftirfarandi:
Heimili Vinnustaður Samtals Hlutfall
Virk 116.489 14.409 130.898 85%
Óvirk 19.195 3.883 23.078 15%
Samtals 135.684 18.292 153.976 100%
Kostnaður Íslandspósts af alþjónustu
Með bráðabirgðaákvörðun stofnunarinnar nr. 29/2019 var einnig kveðið á um svokallað varúðarframlag til handa Íslandspósti. Í ákvörðun stofnunarinnar er lýst helstu reglum sem gilda um útreikninga á alþjónustukostnaði félagsins (hreinum kostnaði) sem og kveðið á um að uppgjöri varúðarframlagsins skuli vera lokið í síðasta lagi þann 1. apríl 2021.
Til að tryggja gagnsæi um umfang kostnaðar ÍSP af þeirri þjónustu sem fellur undir alþjónustu var fyrirtækinu gert að skipta þeim kostnaði í fernt:
• Hreinn kostnaður vegna landpóstsdreifingar, sbr. viðauki II.
• Hreinn kostnaður vegna dreifingar í þéttbýliskjörnum með undir 750 fyrirtækjum/heimilum, sbr. viðauki II.
• Hreinn kostnaður vegna sömu gjaldskrár um land allt fyrir vörur innan alþjónustu, sbr. 2. mgr. 17. gr. laga um póstþjónustu, sbr. kafli 2.11.
• Hreinn kostnaður vegna blindrasendinga, sbr. kafli 2.12.
Íslandspóstur skal gera grein fyrir helstu forsendum útreikninga félagsins varðandi hvert og eitt af þessum atriðum.
Í ákvörðuninni er einnig kveðið á um eftirlit með gjaldskrá Íslandspósts, bókhaldslega aðgreiningu sem og eftirlit með fjárhagsstöðu félagsins o.fl.