Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
13/2024
Heiti
Ágreiningur um kostnað vegna neyðarboða
Dagsetning
04.11.2024
Málaflokkur
Annað
Lagagreinar
  1. gr. Verð fyrir lúkningu símtala
  1. gr. Verndun talsímanetsins.
  1. gr. Almannaviðvörunarkerfi
Reifun

Almennu fjarskiptanetin eru ekki sérstaklega skilgreind sem neyðarfjarskiptakerfi í lögum en þó er ljóst út frá væntingum notenda, viðbragðaaðila og annarra opinberra aðila að almenna farnetið sé í reynd ákveðið öryggistæki fyrir almenning.

Fjöldi SMS viðvarana sem viðbragðaðilar senda almenningi, um yfirvofandi eða yfirstandandi neyðarástand, hefur stóraukist á síðastliðnum árum. Það má að miklu leyti rekja til kórónuveirufaraldursins og eldsumbrota á Reykjanesskaga. Kostnaður fjarskiptafélaganna vegna neyðarboða hefur að sama skapi stóraukist meðal annars vegna þess að þau þurfa að standa skil á gjöldum til erlendra fjarskiptafyrirtækja vegna slíkra skilaboða. 

Hingað til hafa fjarskiptafélögin gefið út reikninga fyrir þessa þjónustu og hafa þeir verið greiddir fram á þetta ár. Við kostnaðargreiningu hjá Neyðarlínunni ohf. vakti þessi stóraukni kostnaður vegna neyðarboða athygli með tilliti til orðalags 99. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022 sem kveður á um skyldu fjarskiptafyrirtækja til að senda viðvaranir um kerfin „án endurgjalds“.

Síðastliðið sumar barst Fjarskiptastofu erindi frá Neyðarlínunni ohf. þar sem óskað var eftir því að stofnunin skýrði betur inntak 99. gr. fjarskiptalaga en ákvæðið varðar  skyldu fjarskiptafélaga til að senda skv. beiðni almannavarna og viðbragðsaðila um farnetskerfi sín viðvaranir um yfirvofandi eða yfirstandandi neyðarástand án endurgjalds.  

Þar sem upp var kominn ágreiningur milli Neyðarlínunnar og fjarskiptafyrirtækjanna Símans hf. og Sýnar hf. um greiðslu reikninga vegna neyðarboða taldi Fjarskiptastofa að rétt væri að stofnunin leysti úr deilunni með ákvörðun. Stofnunin horfði til þess að stjórnvöld leysa almennt ekki úr tilteknu ágreiningsmáli með leiðbeiningum til aðila sem það treystir á að aðilar hlíti og gæta þyrfti að hæfi stofnunarinnar ef til formlegrar úrlausnar kæmi á seinni stigum.

Niðurstaða Fjarskiptastofu í málinu var tvíþætt, annars vegar taldi stofnunin að Neyðarlínunni væri óskylt að senda formlega beiðni til fjarskiptafyrirtækja fyrirfram um að neyðarboð yrðu endurgjaldslaus áður en þau væru send út. Hins vegar taldi stofnunin að fjarskiptafyrirtækjunum væri heimilt að gefa út reikninga til handa Neyðarlínunni vegna útlagðs kostnaðar vegna lúkninga- og reikigjalda, þar sem 99. gr. fjarskiptalaga væri ekki ætlað að hrófla við gjaldtöku skv. 53. og 54. gr. fjarskiptalaga. Slíkur kostnaður félli ekki undir orðalagið „án endurgjalds“ samkvæmt 99. gr. fjarskiptalaga. 

Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð