Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
15/2024
Heiti
Framkvæmd fjárhagslegs aðskilnaðar hjá Ljósleiðaranum ehf. 2021-2023
Dagsetning
19.12.2024
Málaflokkur
Fjárhagslegur aðskilnaður og samlegð
Lagagreinar
  1. Aðskilnaður sérleyfisstarfsemi frá fjarskiptastarfsemi
Reifun

Í lok árs 2024 tók Fjarskiptastofa (FST) ákvörðun nr. 15/2024 vegna úttektar stofnunarinnar á framkvæmd á fjárhagslegum aðskilnaði Ljósleiðarans ehf. innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur (OR).

Úttekt FST sem tók til tímabilsins 2021-2023 fól m.a. í sér að kanna forsendur varðandi líftíma gagnaflutningskerfa, forsendur vegna viðskiptalíkans, gjaldskrá fyrir aðgangsgjald gagnaveitu, þjónustusamning milli OR og Ljósleiðarans, skilmála lánssamninga, gjaldskrá fyrir aðstöðuleigu og yfirlit yfir stöðu sjóðspotts ásamt samanburð við önnur fjarskiptafélög. Eftirlit FST með framkvæmd á fjárhagslegum aðskilnaði er viðvarandi verkefni stofnunarinnar sbr. 10. gr. fjarskiptalaga.   

Þau gögn sem FST hafði til skoðunar við mat sitt eru m.a., lánssamningar við lánastofnanir, arðsemi, virðisrýrnunarpróf Ljósleiðarans, þjónustusamningur félagsins við OR, rökstuðningur Ljósleiðarans fyrir afskriftartíma ljósleiðarakerfa, afrit af húsaleigusamningum vegna hýsingar, yfirlit yfir stöðu sjóðspotts á tímabilinu ásamt viðskiptum milli félagsins og OR, viðskiptalíkan og áritaðir ársreikningar Ljósleiðarans fyrir árin 2021 til ársins 2023.   

Jafnframt hefur við skoðun á þeim gögnum sem Ljósleiðarinn hefur sent FST, bæði þeim sem stofnuninni eru sent reglulega, sbr. ákvörðun PFS nr. 39/2010, sem og þeim viðbótargögnum sem kallað hefur verið eftir sérstaklega í úttektinni benda ekki til þess að tekjur af starfsemi OR sem nýtur einkaréttar eða verndar séu notaðar til að styrkja fjarskiptastarfsemi Ljósleiðarans, í samkeppni við önnur fyrirtæki á markaði.

Niðurstaða FST er að fjárhagslegur aðskilnaður OR og  Ljósleiðarans, á árunum 2021 til 2023, hafi verið í samræmi við  10. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022.

Tengt efni
Ekkert tengt efni skráð