Hoppa yfir valmynd
Ákvarðanir
Númer
E-1846/2021
Heiti
Kvörtun Sýnar gegn Fjarskiptastofu og fjarskiptafyrirtækjum
Dagsetning
28.10.2024
Málaflokkur
Fjölmiðlar
Lagagreinar
  1. gr. Flutningsréttur á myndefni.
Reifun

Með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála í kærumáli nr. 7/2019 hafði nefndin ógilt ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 27/2019 um brot Símans á 5. mgr. 45. gr. laga um fjölmiðla nr. 38/2011 sem bannar efnisveitum að beina sjónvarpsefni að tengdum fjarskiptafyrirtækjum. Brotið hafi verið fólgið í því að til að geta sótt efni Sjónvarps Símans, óháð undirliggjandi fjarskiptaneti, hafi notendur þurft að leigja myndlykil af Símanum (sem gerði notendum kleift  að nálgast efnið með „Over the Top“ lausn (OTT) . Taldi nefndin að rannsókn Fjarskiptastofu hefði verið ábótavant, t.d. hafi ekki verið framkvæmdur samanburður á OTT lausn Símans við smáforrit annarra (erlendra) efnisveitenda, t.d. hvað varðar gæði. Einnig hafi stofnunin ekki fært rökstuðning fyrir því að myndlykillinn hafi verið hluti að fjarskiptaneti fjarskiptafyrirtækis. Fjarskiptastofa ásamt Sýn var ekki sammála þeim ágöllum sem úrskurðarnefndin taldi að hefðu verið á rannsókn málsins og skutu úrskurðinum til héraðsdóms Reykjavíkaur með kröfu um ógildingu hans. Í niðurstöðu dómsins var tekið undir sjónarmið stefnenda um að ekki ætti að einblína á tæknilega þætti málsins, t.d. hvort að myndlykill hafi verið hluti af fjarskiptafyrirtækis eða ekki. Að mati dómsins hafi Fjarskiptastofa metið með heildstæðum hætti, t.d. hvað varðar framsetningu á þjónustunni, markaðssetningu hennar, verðlagningu og dreifingu, að háttsemi Símans hefði brotið gegn 5. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga. Féllst því dómurinn á ógildingu úrskurðarins.           isveitunnar. Var því úrskurður úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála felldur úr gildi.