Samgönguráðherra vill leggja niður úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála
Fréttasafn
08. september 2005
Samgönguráðherra vill leggja niður úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála
Úrskurðarnefnd um póst- og fjarskiptamál verður lögð niður samkvæmt tillögu sem samgönguráðherra lagði fyrir ríkisstjórn þriðjudaginn 6. september. Í athugasemdum með frumvarpi um breytingar á fjarskiptalögum kemur fram að einfaldara þyki að samgönguráðuneytið úrskurði í málum þar sem ágreiningur um ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar á fjarskiptamarkaði kunna að koma upp.
Meira um úrskurðarnefnd póst- og fjarskiptamála