Hoppa yfir valmynd

Breiðbandið byltir sjónvarpsnotkun

Fréttasafn
14. september 2005

Breiðbandið byltir sjónvarpsnotkun

Breiðbandsvæðingin mun gerbylta sjónvarpsrekstri og því hvernig fólk notar sjónvarp. Þetta er meginniðurstaða nýrrar skýrslu breska ráðgjafafyrirtækisins Lovelace Consulting. Í henni segir að innan áratugs verði þorri alls sjónvarpsefnis sent yfir Netið og þá geti notendur vafrað á milli mörg þúsund efnisveitna og valið það efni sem þeir helst kjósa.

 

Eins og fram kom í skýrslu OECD á vordögum er Ísland í fjórða sæti í útbreiðslu breiðbands með háhraðatengingum til um 50.000 heimila. Í Bretlandi er breiðbandsvæðingin enn styttra á veg komin. Engu að síður sjá menn það fyrir að flest heimili á Bretlandseyjum muni á næstu árum verða komin með breiðbandstengingu og geti þá tekið við stafrænum sjónvarpssendinum yfir netið eða IPTV (e.internet protocol TV). Hefðbundin sjónvarpsdagskrá mun því innan skamms heyra sögunni til ef marka má skýrsluna, en greint var frá niðurstöðum hennar í breska útvarpinu BBC á dögunum.

 

Sjá frétt breska útvarpsins BBC


Sjá grein um stafrænt sjónvarp