Hoppa yfir valmynd

Fjögur norsk fjarskiptafyrirtæki útnefnd með umtalsverðan markaðsstyrk

Fréttasafn
21. september 2005

Fjögur norsk fjarskiptafyrirtæki útnefnd með umtalsverðan markaðsstyrk

Norska Póst- og fjarskiptastofnunin hefur útnefnt fjögur fjarskiptafyrirtæki með umtalsverðan styrk á mörkuðum fyrir lúkningu símtala í farsímanetum (markaði 16). Þetta eru fyrirtækin Telenor ASA, NetComAS, Tele2Norge AS og Teletopia Mobile Communications AS.
Á Telenor og NetCom er lögð á kvöð um verðþak á lúkningu símtala í eigin netum og er þeim gert að lækka verulega gjöld fyrir árslok 2006. Verðmunur á lúkningaþjónustu hjá þessum tveimur fyrirtækjum mun jafnframt minnka því farið er fram á að NetCom lækki gjaldskrá meira en Telenor. Forstjóri norsku Póst- og fjarskiptastofnunarinnar væntir þess að þessi ákvörðun komi neytendum til góða og að gjöld fyrir farsímanotkun muni lækka. Talið að sparnaður norskra neytenda geti numið meira en 400 milljónum norskra króna á ári að viðbættum virðisauka, eða um fjórum milljörðum íslenskra króna .