Dreifing fjölpósts og fríblaða
Dreifing fjölpósts og fríblaða
Póst- og fjarskiptastofnun hefur undanfarna mánuði staðið fyrir vinnu starfshóps með það að markmiði að ná samkomulagi meðal hagsmunaðila þar sem neytendum yrði tryggður réttur til að afþakka fjölpóst og/eða fríblöð.
Drög að samkomulagi gengu út frá að óumbeðnar sendingar yrðu settar í tvo flokka, annars vegar fjölpóst og hins vegar fríblöð. Neytendur gætu síðan hafnað öðrum hvorum flokknum eða báðum.
Þrátt fyrir að allir aðilar lýstu yfir áhuga á að finna lausn á þessu mikilvæga neytendamáli hefur ekki tekist að ná samkomulagi um samræmt verklag um meðferð fjölpósts sem dreift er í fríblöðum. Póst- og fjarskiptastofnun hefur því tilkynnt þeim hagsmunaðilum sem komu að þessari vinnu að störfum starfshópsins sé hér með lokið enda ekki lengur grundvöllur fyrir "samkomulagsleið".
Póst- og fjarskiptastofnun mun í framhaldi af þessari niðurstöðu skrifa bréf til samgönguráðherra þar sem farið verður yfir vinnu starfshópsins og þær leiðir sem til greina gætu komið hér á landi til að tryggja betur en nú er gert rétt neytenda til að afþakka fjölpóst og/eða fríblöð.