Ný símanúmer fyrir samfélagsþjónustu laus til umsóknar
Ný símanúmer fyrir samfélagsþjónustu laus til umsóknar
Póst- og fjarskiptastofnun kynnir nú ný númer fyrir samfélagsþjónustu. Þjónustan í númerunum er samræmd fyrir Evrópu þannig að í hverju landi er samskonar þjónusta.
Áskilið er að símtöl í þjónustuna skulu vera gjaldfrjáls.
PFS auglýsir hér með númerin 116 000, 116 111 og 116 123 laus til umsóknar.
Áhugasamir geta sótt um númerin fyrir 19.desember n.k.
Eftirfarandi skilyrði eru fyrir því að geta fengið þessi númer:
Númerið 116 000 er fyrir þjónustu vegna týndra barna. Þar skal taka á móti ábendingum um týnd börn og koma þeim upplýsingum áfram til lögreglu. Þjónustan skal einnig bjóða uppá leiðbeiningar og stuðning fyrir aðstandendur týndra barna og veita upplýsingar um leit að týndum börnum.
Númerið 116 111 er fyrir „Símaráðgjöf fyrir börn“. Þarna skulu börn hafa möguleika á að tala við ráðgjafa um hvers kyns vandamál sem hafa áhrif á þau og ef þörf er á koma þeim í samband við aðila sem geta aðstoðað þau frekar.
Númerið 116 123 er hjálparlína. Þar skal vera í boði tilfinningalegur stuðningur fyrir fólk sem þjáist af einmanaleika eða sálfræðilegu áfalli eða hugleiðir sjálfsmorð. Lögð skal áhersla á að hlusta á þá sem hringja inn, án þess að dæma.
| Númer | Þjónusta sem skal vera í númerinu | Sérstök skilyrði vegna þjónustunnar |
| 116 000 |
Símalína vegna týndra barna Lýsing þjónustu:
|
Þjónustan skal vera samfelld (þ.e. 24 tíma á dag, 7 daga vikuna) |
| 116 111 |
Símaráðgjöf fyrir börn Lýsing þjónustu: |
Þar sem þjónusta er ekki samfelld (þ.e 24 tíma 7 daga vikuna) verður þjónustuveitandinn að tryggja að upplýsingar séu tiltækar um það hvenær þjónustan sé aðgengileg. |
|
116 123 |
Sálræn hjálparlína fyrir almenning Lýsing þjónustu: |
Þar sem þjónusta er ekki samfelld (þ.e 24 tíma 7 daga vikuna) verður þjónustuveitandinn að tryggja að upplýsingar séu tiltækar um það hvenær þjónustan sé aðgengileg. |