Nýjar reglur PFS um verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu
Nýjar reglur PFS um verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu
Póst- og fjarskiptastofnun hefur sett nýjar reglur um verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu. Reglurnar voru settar í tengslum við undirbúning stofnunarinnar að gerð reiknivélar fyrir neytendur um fjarskiptakostnað sem birt verður á Netinu innan tíðar.
Markmið reglnanna og Reiknivélar PFS er að auka gagnsæi í verðlagningu á fjarskiptaþjónustu með því að birta opinberlega og gera aðgengilega heildstæða samantekt á verðskrám starfandi fjarskiptafyrirtækja, draga fram mismunandi þætti í samsetningu verðs og gefa notendum sjálfum kost á því að gera með gagnvirkum hætti marktækan samanburð á verði með tilliti til eigin notkunar.
Póst- og fjarskiptastofnun væntir þess að Reiknivél PFS og reglurnar um verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu verði til hagsbóta fyrir neytendur á fjarskiptamarkaði um leið og þeim er ætlað að stuðla að bættri neytendavernd og aukinni verðvitund almennings.
Reglur um verðsamanburð á fjarskiptaþjónustu nr. 220/2010 tóku gildi við birtingu í Stjórnartíðindum þann 16. mars sl.
Birting Reiknivélar PFS og aðgengi að henni verður auglýst með skýrum hætti af hálfu stofnunarinnar þegar þar að kemur.