Ákvörðun PFS í ágreiningsmáli um aðgang GlobalCall að almenningssímum Símans
Ákvörðun PFS í ágreiningsmáli um aðgang GlobalCall að almenningssímum Símans
PFS hefur birt ákvörðun sína nr. 10/2010 í ágreiningsmáli um aðgang GlobalCall ehf. að almenningssímum Símans hf.
Í ákvörðunarorðum segir m.a.:
Síminn hf. skal eftir því sem það er tæknilega mögulegt opna fyrir innhringingar inn í 800 númer GlobalCall úr þeim almenningssímum sem fyrirtækið þjónustar fyrir BBG GLOBAL AG.
Síminn skal leita leiða til að auka möguleika notenda til að hringja í 800 númer annarra þjónustuveitenda, t.d. með uppsetningu nýrra almenningssíma í flugstöðinni.
Við endurnýjun á almenningssímum sem og við uppsetningu á nýjum almenningssímum skal þess gætt að opið sé fyrir hringingar inn í öll fjarskiptanet sem og þá þjónustu sem veitt er í viðkomandi netum.
Sjá ákvörðunina í heild:
Ákvörðun PFS nr. 10/2010 í ágreiningsmáli um aðgang GlobalCall ehf. að almenningssímum Símans hf. (PDF)