Póst- og fjarskiptastofnun flytur í nýtt húsnæði.
Fréttasafn
15. júní 2004
Póst- og fjarskiptastofnun flytur í nýtt húsnæði.
Póst- og fjarskiptastofnun flytur í nýtt húsnæði
Miðvikudaginn 16. júní flytur Póst- og fjarskiptastofnun í nýtt húsnæði að Suðurlandsbraut 4 á 2. hæð. Stofnunin hefur verið til húsa að Smiðjuvegi 68-70 frá stofnun árið 1997.
Nýja húsnæðið hentar betur starfsemi stofnunarinnar auk þess sem stofnunin er nú staðsett nær þeim aðilum sem hún á hvað mest samskipti auk þess sem aðkoma mun batna til muna m.a. fyrir fatlaða.
Að öðru leyti verða ekki breytingar á starfsemi Póst- og fjarskiptastofnunar.
Meðfylgjandi er mynd af Hrafnkeli V. Gíslasyni forstjóra stofnunarinnar og Bjarna Pálssyni forstjóra Keflavíkurverktaka við undirritun á leigusamningi vegna Suðurlandsbrautar 4.