Hoppa yfir valmynd

Netsími- ný tækifæri. Ráðstefna 17. maí 2005

Fréttasafn
13. maí 2005

Netsími- ný tækifæri. Ráðstefna 17. maí 2005

Í tilefni af alþjóðlega fjarskiptadeginum þann 17. maí 2005 stóð Póst- og fjarskiptastofnun fyrir fjölsóttri ráðstefnu undir fyrirsögninni Netsími- ný tækifæri á Grandhóteli í Reykjavík. 
Þar voru kynntar helstu nýjungar í símaþjónustu á Netinu (VoIP), greint frá stefnumiðum stjórnvalda í fjarskiptum og varpað ljósi á hvaða leiðir aðrar Evrópuþjóðir hafa farið til að tryggja neytendum bestu þjónustu og kjör. 

Fyrirlesarar voru Alan Van Gaever sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Daniel Voisard sérfræðingur hjá svissneska samgönguráðuneytinu, Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar og Arnþór Halldórsson framkvæmdastjóri HIVE.
Allir fyrirlestrarnir voru teknir upp og er allt efni ráðstefnunnar, upptökur og kynningarglærur, aðgengilegt hér. 
  
Ávarp Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra. 
   
Alain Van Gaever sérfræðingur framkvæmdastjórnar ESB
Hvernig er leitast við að tryggja samkeppni, öryggi og gæði í netsímaþjónustu  á evrópska efnahagssvæðinu? (The EU Regulatory Perspective on VoIP). 

Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar.
Samþjónusta og samruninn. 

Daniel Voisard, sérfræðingur í svissneska samgönguráðuneytinu. 
Breyttar forsendur í talsímaþjónustu. Svissneska leiðin í regluverki. 
(Evolution and convergence of new voice services - The Swiss telecom regulation). 
  
Arnþór Halldórsson framkvæmdastjóri HIVE.
Að markaðssetja netsíma fyrir upplýsta og krefjandi neytendur.  
(Marketing VoIP services in a mature and demanding market). 
 
Umræður. 

Ráðstefnustjóri var Þorsteinn Joð

Með netsímaráðstefnunni tókst að skapa umræðugrundvöll fyrir fyrirtæki, sérfræðinga og stjórnvöld á sviði fjarskipta. Fengur var að því að heyra sjónarmið helstu sérfræðinga sem móta lög og reglur um netsímaþjónustu á evrópska efnahagssvæðinu, en íslensk fjarskiptalöggjöf tekur mið af tilskipunum ESB á þessu sviði. Einnig komu fram upplýsingar um íslensk fyrirtæki sem eru að undirbúa markaðssetningu á netsímaþjónustu. Um sjötíu manns sóttu ráðstefnuna.