PFS hefur skráningu á kennimörkum viðfanga (Object identifiers) á Íslandi
PFS hefur skráningu á kennimörkum viðfanga (Object identifiers) á Íslandi
Póst- og fjarskiptastofnun hefur hafið skráningu á kennimörkum viðfanga (Object Identifiers - OID).
Kennimark viðfangs ( e. Object Identifier; OID) er notað til að auðkenna ýmsa hluti í upplýsinga-og fjarskiptatækni og er skilgreint sem hnútpunktur í nafnarými (e. Namespace) sem byggt er eins og tré. Kennimark er byggt á ASN.1 ( Abstract Syntax Notation One) sem er skilgreint í staðlinum X-680 frá alþjóðafjaskiptasambandinu ITU -T. ASN1.
Kennimörk koma víða við sögu þar á meðal í rafrænum skilríkjum, s.s. fyrir vísun í vottunarstefnu, yfirýsingskjöl og sem aðgreind heiti viðfanga ( e. Distinguished names). Þá er ASN.1 einnig notað fyrir eigindi og hluti í X.500 skráarkerfum og LDAP ( Lightweight Directory Access Protocol) samskiptum, fyrir hluti í MIB(Management Information Base) í SNMP( Simple Network Management Protocol) netsjónarkerfum og sem vísar í almennri forritun svo einhver dæmi séu tekin.
Fyrir hönd samstarfshóps fjármálaráðuneytisins og Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF - áður SBV) var í upphafi árs formlega óskað eftir því að Staðlaráð Íslands og Póst- og fjarskiptastofnun kæmu á laggirnar og reki skráningarstöð fyrir kennimörk viðfangs (e. Object Identifier: OID) í samræmi við kröfur sem vísað er til í staðlinum ITU-T X.660 frá alþjóðafjarskiptasambandinu og staðalsins ISO/IEC 9834 frá alþjóðastaðlasambandinu ISO, undir íslenska landsboganum {joint-iso-itu-t(2) country(16) is(352)}.
Þessi skráning er meðal annars tilkomin vegna vottunarstefnu í útgáfu rafrænna skilríkja, í samræmi við kröfur í ITU og ISO stöðlunum ITU-T X.509 og ISO/IEC 9594-8.
Póst- og fjarskiptastofnun og Staðlaráð Íslands hafa, sem fulltrúar Íslands í ITU og ISO, staðfesta með formlegu samkomulagi að þessi skráning undir íslenska landsboganum {joint-iso-itu-t(2) country(16) is(352)} muni fara fram hjá Póst- og fjarskiptastofnun.
Lýsing á starfsemi skráningarstöðvar fyrir kennimark viðfangs (PDF)
Frekari upplýsingar:
http://asn1.elibel.tm.fr/en/introduction/index.htm
http://asn1.elibel.tm.fr/cgi-bin/oid/display?oid=2.16.352&action=display
http://asn1.elibel.tm.fr/en/standards/index.htm
http://asn1.elibel.tm.fr/en/tools/oid/standards.htm