PFS kallar eftir samráði við hagsmunaaðila um viðmiðunartilboð Símans um aðgang til endursölu og sýndarnetsaðgang að farsímaneti
PFS kallar eftir samráði við hagsmunaaðila um viðmiðunartilboð Símans um aðgang til endursölu og sýndarnetsaðgang að farsímaneti
Póst- og fjarskiptastofnun barst í maí sl. afrit af viðmiðunartilboðum Símans um sýndarnetsaðgang og endursöluaðgang að farsímaneti fyrirtækisins.
Með ákvörðun PFS nr. 4/2007 um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á markaði fyrir aðgang og upphaf símtala í almennum farsímanetum (markaði 15), var Síminn útnefndur með umtalsverðan markaðsstyrk á heildsölumarkaði fyrir aðgang til endursölu í almennum farsímanetum og heildsölumarkaði fyrir aðgang fyrir sýndarnet í almennum farsímanetum.
Áður en PFS tekur afstöðu til þess hvort að þau viðmiðunartilboð sem nú hafa verið birt af hálfu Símans, uppfylla þær kvaðir sem koma fram í ákvörðun stofnunarinnar nr. 4/2007, sem og hvort þau samrýmast ákvæðum fjarskiptalaga að öðru leyti, óskar stofnunin eftir afstöðu hagsmunaaðila til viðmiðunartilboðsins.
Frestur til að senda inn umsagnir og athugasemdir er gefinn til 21. júlí n.k.
Sjá bréf PFS til hagsmunaaðila, 12. júní 2008
Óskað er eftir að umsagnir, athugasemdir og/ eða ábendingar verði sendar á rafrænu formi á netfangið ingahelga (hjá) pfs.is, en jafnframt er óskað eftir að stofnunin fái send frumrit til skráningar.