Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir áformum um lagningu ljósleiðara-aðgangsneta 2024-2026

Fréttasafn
19. mars 2024

Fjarskiptastofa kallar eftir áformum um lagningu ljósleiðara-aðgangsneta 2024-2026

Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. laga um Fjarskiptastofu nr. 75/2021, er stofnuninni heimilt að kanna áform um uppbyggingu eða uppfærslu fjarskiptaneta. Tilgangur slíkrar könnunar er m.a. að leiða í ljós hvar fjarskiptanet verða byggð upp á markaðsforsendum. 

Með bréfi dags. 13. mars 2024, óskaði fjarskiptasjóður eftir því að Fjarskiptastofa kalli eftir áformum fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila um uppbyggingu ljósleiðara-aðgangsneta á þéttbýlisstöðum og í byggðakjörnum fyrir árslok 2026. Þess er óskað að úrvinnslu áformakönnunar verði lokið svo fljótt sem auðið er. Sjóðurinn hyggst nýta tímann í millitíðinni og undirbúa styrkúthlutunarferli vegna uppbyggingar ljósleiðara-aðgangsneta utan markaðssvæða á þéttbýlisstöðum og byggðakjörnum með það fyrir augum að hefja framkvæmd styrkveitinga í kjölfarið. 

Skorað er á alla aðila sem hafa áform um uppbyggingu ljósleiðara-aðgangsnets fyrir árslok 2026 að senda Fjarskiptastofu upplýsingar um áformin. 

Sjá nánar um framkvæmd og skilafrest (PDF skjal)
Fylgiskjal: Staðfangaskráning (XLSX skjal)

Skila ber öllum upplýsingum og fylgigögnum til Fjarskiptastofu eins fljótt og auðið er og eigi síðar en kl. 12:00, föstudaginn 13. apríl nk. 
ATHUGIÐ framlengdan skilafrest til 19. apríl nk.

Skila skal gögnum inn á eftirfarandi svæði: Gögn til Fjarskiptastofu (fjarskiptastofa.is). 

Svarendum er gefinn kostur á að koma á framfæri sjónarmiðum sínum varðandi framkvæmd þessarar könnunar og úrvinnslu hennar.

Ef frekari upplýsinga er þörf á meðan á könnun stendur má senda fyrirspurnir á sigurjon@fjarskiptastofa.is. 
Beiðni um upplýsingar er varða aðkomu Fjarskiptasjóðs óskast sendar á netfangið: otto.winther@hvin.is
Fyrirspurnir skulu berast eigi síðar en kl. 12:00 þann 5. apríl nk. 


Fjarskiptastofa mun birta fyrirspurnir og svör hér á þessari síðu svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en  þann 9. apríl nk.