Lokun 2G og 3G farsímaþjónustu
Lokun 2G og 3G farsímaþjónustu
Fjarskiptastofa vill vekja athygli á því að það styttist óðum í að eldri farsímaþjónustu, 2G (GSM) og 3G, verði lokað hér á landi.
Fjarskiptastofa vakti athygli á þessu máli í febrúar 2022 þegar stofnunin efndi til opins samráðs um áætlun farsímafyrirtækja varðandi lokun þjónustunnar. Í lok þess samráðs var gefin út fréttatilkynning um helstu niðurstöður:
Þar kom fram að farsímafyrirtækin hygðust öll loka 2G og 3G þjónustum sínum í síðasta lagi fyrir árslok 2025, en á þeim tímapunkti verða tæp fjögur ár liðin frá því að áform um lokun voru kynnt opinberlega í samráði Fjarskiptastofu. Það skal tekið fram að ákvörðun tímasetningar lokunar 2G og 3G þjónustu er tekin af viðkomandi fjarskiptafélögum en ekki Fjarskiptastofu.
Staða málsins er nú sú að þegar hefur verið slökkt á hluta 2G og 3G þjónustu fjarskiptafélaganna á landinu, en markmið þeirra er að lágmarka neikvæð áhrif á viðskiptavini og því er þetta gert í áföngum. Lokun þjónustu hjá einstökum fyrirtækjum er nú ráðgerð með þessum hætti:
3G
Öll félög eru að draga úr þjónustu og munu loka í árslok 2025.
2G
- Nova – Lokar á 2G í árslok 2024
- Vodafone – Lokar á 2G á miðju ári 2025
- Síminn – Lokar á 2G í árslok 2025
Helstu áhrif lokunar 2G og 3G eru eftirfarandi:
- Símtæki sem eingöngu styðja 2G eða 3G hætta að virka.
- Símtæki sem ekki styðja VoLTE (Voice over LTE) eða hafa ekki virkjað þá stillingu hætta að virka.
- Ýmis tæki til vöktunar, mælinga og stýringar, sem eingöngu styðja 2G eða 3G hætta að virka.
- eCall neyðarhringingakerfi í bifreiðum sem eingöngu styður 2G eða 3G hætta að virka. Tekið skal fram að aðeins hluti bifreiða í notkun í dag er með eCall búnað. Ný tegund eCall búnaðar er í þróun.
Bent er á að verið er að fasa út 2G/3G á heimsvísu og eru ferðamenn því hvattir til að kanna hvort símtæki þeirra virki í því landi sem fyrirhugað er að ferðast til. Til dæmis er búið að loka á 2G/3G þjónustu í Bandaríkjunum
Útbreiðsla farnetsþjónustu á ekki að minnka við lokun 2G/3G því samkvæmt skilmálum tíðniheimilda fjarskiptafélaganna þá ber þeim að tryggja jafn stórt þjónustusvæði, þegar slökkt verði á 2G/3G þjónustu og nýrri tækni 4G/5G tekur við.
Allir þeir sem nota einhvers konar tæki sem treysta á 2G eða 3G samskiptaleiðir eru hvattir til að hafa samband við sitt fjarskiptafélag til þess að fá upplýsingar um þjónustuframboð og ráðleggingar um næstu skref.
Seljendur búnaðar eru hvattir til þess að huga að fyrirhugaðri lokun og að lágmarki að upplýsa neytendur um það að búnaður sem styður aðeins 2G eða 3G mun hætta að virka eftir rúmt ár.
Að lokum ber þess að geta að farið var að bjóða upp á 2G/3G þjónustu á Íslandi 1994 (2G) og 2007 (3G) og um er að ræða áratuga gamla tækni sem ekki hefur haldið í kröfur nútímans um háhraða gagnaflutning og er því verið að fasa út þessari gömlu og úreltu tækni á heimsvísu og rýma fyrir nýrri og öflugri tækni (4G/5G) sem mun nýta sér þau tíðnisvið sem hafa hingað til verið notuð í 2G/3G.
Varðandi nánari upplýsingar um lokun þjónustunnar hjá viðkomandi fjarskiptafélagi er notendum bent á eftirfarandi upplýsingasíður:
Nova https://www.nova.is/netid/bless-3g
Síminn https://www.siminn.is/2g-3g