Móttaka tölvupósts fyrir mistök, tilviljun eða án sérstakrar heimildar
Móttaka tölvupósts fyrir mistök, tilviljun eða án sérstakrar heimildar
Í fjarskiptalögum er sendandi tölvupósts verndaður gegn því að senda óvart tölvupóst til óviðkomandi aðila fyrir mistök eða tilviljun eða til aðila sem nýtur ekki sérstakrar heimildar til að vinna með efni tölvupóstsins. Þá má óviðkomandi aðilinn ekki hagnýta sér upplýsingar í tölvupóstinum eða dreifa póstinum til annarra. Honum ber jafnframt að tilkynna sendandanum um mistökin. Um er að ræða 4. mgr. 88. gr. ákvæði fjarskiptalaga.
Þann 9. júlí sl. tók Fjarskiptastofa ákvörðun 8/2024 í kvörtunarmáli um að móttakandi tölvupósts hefði brotið gegn umræddu lagaákvæði. Tildrög málsins voru á þá leið að kvartandi sendi tölvupóst á tiltekinn hóp móttakenda þar sem að augljóst var að efnistök póstsins voru ekki ætluð öðrum eða til opinberrar birtingar. Einn af móttakendum póstsins, sem voru fjölmargir, ákvað hins vegar að áframsenda póstinn til annarra aðila utan hóps upprunalegra móttakenda. Ekki er vitað hver sá aðili er eða hvaða ástæður hann hafði fyrir því. Af gögnum máls þótti þó Fjarskiptastofu ósennilegt að hann hefði áframsent póstinn fyrir mistök eða að áframsendingin hefði borist móttakanda fyrir tilviljun eða án sérstakrar heimildar.
Niðurstaða kvörtunarmálsins var á þá leið að eingöngu sendandi tölvupósts geti átt aðild að kvörtunarmáli sem varðar sendingu tölvupóst fyrir mistök eða tilviljun til óviðkomandi aðila sem ekki nýtur sérstakrar heimildar til að vinna með efni tölvupóstsins. Óhjákvæmilega þurfi að koma fram kvörtun og huglæg afstaða sendanda tölvupósts til þessara lagaskilyrða til að hægt sé að leysa úr máli efnislega. Ekki dugi að efni áframsends tölvupósts varði viðkvæma hagsmuni hins upphaflega sendanda tölupóstsins eða að pósturinn hafi verið áframsendur án heimildar hans. Var kvörtuninni því vísað frá á grundvelli aðildarskorts.