Útfösun 2G (GSM) og 3G
Útfösun 2G (GSM) og 3G
Fjarskiptastofa (FST) fylgist náið með þeirri þróun útfösunar á eldri kerfum farneta (2G og 3G), sem nú á sér stað hjá fjarskiptafélögunum þremur sem reka farnetsþjónustu á Íslandi; Nova, Símanum og Sýn.
Það er rétt að taka það fram að þessi útfösun eldri kerfa mun almennt séð hafa í för með sér jákvæða þróun, þar sem farnetskerfi landsins verða einfaldari og skilvirkari þegar 4G og 5G farnet taka við sem burðarásar í samskiptum yfir farnet. Eldri kerfi eru orðin úrelt og til stendur að framleiðendur hætti stuðningi við þann búnað. Það eitt og sér skapar áhættu varðandi öryggi fjarskipta þegar fram í sækir.
Enn fremur er rétt að taka það fram að ákvörðunin um að fasa þessi eldri kerfi út er alfarið ákvörðun fjarskiptafélaganna. FST hefur frá árinu 2022 komið að verkefninu með það að leiðarljósi að huga að hagsmunum neytenda farnetsþjónustu. Farið var í opið samráð í byrjun árs 2023 til þess að upplýsa notendur farnetsþjónustu um hvað væri í vændum og reyna þannig að tryggja það að nægur tími væri til stefnu til að skipta út mikilvægum búnaði áður en til lokunar kerfanna kæmi.
Fjarskiptastofa setti einnig kvaðir í tíðniheimildir fjarskiptafélaganna um að við lokun eldri kynslóða farneta (2G og 3G) verði hvorki skerðing á þjónustu né útbreiðslu. Kvaðir um útbreiðslu miðast við ákveðinn hundraðshluta íbúa landsins. Þá hefur FST sent fjölda fréttatilkynninga til þess að upplýsa neytendur um hvers má vænta og hvernig best er að undirbúa sig fyrir lokun kerfanna. Einnig hefur FST sett upp sérstaka vefsíðu fyrir neytendur til að koma ábendingum og kvörtunum á framfæri ásamt leiðbeiningum um það hvernig neytendur geta sjálfir og/eða í samstarfi við sinn þjónustuveitenda bætt móttöku- og sendiskilyrði sín, hvort sem er fyrir utanhúss- eða innanhúss útbreiðslu.
Þegar hér er komið sögu og aðeins tæpir þrír mánuðir eru til lokadagsetningar þykir Fjarskiptastofu rétt að upplýsa neytendur um það hver framvindan er í verkefninu og hvernig til hefur tekist hingað til.
Nova og Sýn (Vodafone) hafa nú þegar lokið við útfösun á 2G (GSM) kerfum sínum og eru mjög langt komin með lokun á 3G kerfinu. FST hefur þegar þetta er skrifað ekki móttekið margar ábendingar eða kvartanir um breytingar á þjónustu þessara tveggja aðila, sem bendir til þess að þjónusta sem veitt er yfir 4G og 5G kerfi þessara aðila sé sambærileg og jafnvel betri en var á eldri kerfunum.
Síminn er kominn mun styttra á veg með sínar lokanir og því ekki miklar breytingar orðið á kerfum Símans enn sem komið er. Aukinn þungi mun hins vegar færast í lokanir eldri kerfa Símans á síðustu þremur mánuðum ársins. Fjarskiptastofa hefur enga ástæðu til að ætla að annað verði upp á teningnum hjá Símanum en hjá Nova og Sýn, enda hafa öll félögin lagt mikið í undirbúning og upplýsingagjöf til viðskiptavina sinna . Þó er ekki hægt að útiloka að einhver vandamál komi upp í undirbúningnum í lokaþættinum.
Fjarskiptastofa leggur áherslu á að notendur farneta nýti sér vef FST til þess að koma á framfæri ábendingum og kvörtunum um skert þjónustustig, ef neytendur telja sig verða fyrir slíku. FST tekur á öllum ábendingum sem fram koma af alvöru og skoðar þær vandlega, bregst við þeim með skoðun og mælingum og/eða kemur þeim á framfæri við fjarskiptafélögin ef því er að skipta. Þar sem nokkuð hefur borið á því að ábendingar og kvartanir sem Fjarskiptastofu hafa borist (jafnvel í gegnum fjölmiðla) sé ekki hægt að rekja til útfösunarinnar, vill FST hvetja neytendur og fjölmiðla til að leita fyrst svara hjá FST og fjarskiptafélögunum áður en lengra er haldið með málið.
Fjarskiptastofa ítrekar mikilvægi þess að almennir notendur tryggi að búnaður þeirra — hvort sem um ræðir farsíma, öryggiskerfi eða önnur tæki sem nýta farnet — sé tilbúinn fyrir nýja tíma í fjarskiptum. Eldri kerfi eins og 2G og 3G eru að hverfa, en 4G og 5G bjóða upp á öruggari, hraðari og stöðugri tengingu.
Fjarskiptastofa vill jafnframt minna á að mikilvægt er að stofnanir og fyrirtæki, einkum þau sem reka viðkvæman eða öryggistengdan búnað, tryggi að öll kerfi og tæki sem nýta farnet séu samhæfð nýjustu tækni. Lokun 2G og 3G kerfa er óhjákvæmileg þróun sem þjónar öryggi og stöðugleika fjarskipta til framtíðar.
Gerið ráðstafanir núna — áður en slökkt er á eldri kerfunum — og tryggið að mikilvæg samskipti, kerfi og þjónusta haldist órofin þegar framtíðin tekur við.