Uppbygging háhraðanettenginga boðin út fyrir hönd fjarskiptasjóðs
Fréttasafn
28. febrúar 2008
Uppbygging háhraðanettenginga boðin út fyrir hönd fjarskiptasjóðs
Ríkiskaup hefur auglýst eftir tilboðum í uppbyggingu háhraðanettenginga fyrir hönd Fjarskiptasjóðs.
Verkefnið felur í sér stuðning vegna viðbótarkostnaðar við uppbyggingu á háhraðanettengingum á skilgreindum stöðum, sem eru lögheimili með heilsársbúsetu og fyrirtæki með starfsemi allt árið þar sem háhraðanettengingar eru hvorki í boði né fyrirhugaðar á markaðslegum forsendum.
Sjá auglýsingu á vef Ríkiskaupa