Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli: Öll fjarskiptakerfi í lagi en staðbundnar truflanir á póstþjónustu
Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli: Öll fjarskiptakerfi í lagi en staðbundnar truflanir á póstþjónustu
Póst- og fjarskiptastofnun fylgist með stöðu fjarskiptakerfa og póstþjónustu á landinu í tengslum við þær náttúruhamfarir sem nú standa yfir í Eyjafjallajökli. Stofnunin er í sambandi við þá aðila sem sinna fjarskipta- og póstþjónustu. Skv. upplýsingum þeirra hefur ekki orðið nein truflun á fjarskiptakerfum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hins vegar hefur öskufall og lokanir vega í för með sér nokkrar truflanir á póstþjónustu á þeim stöðum þar sem það á við. Ljóst er að öskufall getur haft áhrif á tímasetningar og þjónustu í pósti víða um land meðan eldgosið varir, eftir því sem veður og vindar breytast. Einnig hefur öskufallið áhrif á póstflutning milli landa þar sem flugsamgöngur hafa stöðvast víða í norður Evrópu vegna ösku í lofti.
Á vefsíðu Íslandspósts, www.postur.is er hægt að fylgjast með stöðu mála varðandi póstflutninga.