Hoppa yfir valmynd

Reglur um forval símnotenda tala gildi

Fréttasafn
03. apríl 2000

Reglur um forval símnotenda tala gildi

Frá og með 1. apríl 2000 tóku gildi reglur um forval og fast forval símnotenda. Í forvali geta símnotendur kosið þjónustu nýrra þjónustuveitenda t.d fyrir símtöl til útlanda með því að velja fjögurra tölustafa forskeyti. Er þá fyrst valið forskeytið, síðan 00 og eftir það landsnúmer og símanúmer þess sem hringt er til. Forskeytin eru frá 1000 upp í 1100. Nauðsynlegt er að notendur skrái sig hjá viðkomandi þjónustuveitanda fyrirfram. Símnotendur eiga þess einnig kost að gera fyrirfram samning um fast forval við þjónustuveitanda og þurfa þá ekki að velja forskeytið í hverju símtali en geta strax valið 00 og síðan landsnúmer og símanúmer eins og áður.

Símnotandi sem kýs fast forval verður að skrá sig hjá viðkomandi þjónustuveitanda en hann skal senda símnotandanum staðfestingu á skráningu og tilkynna símafyrirtækinu sem notandinn er tengdur við um forvalið. Það á ekki að taka nema 5 daga eftir skráningu að koma á föstu forvali. Þjónustuveitandinn greiðir kostnað af að koma á föstu forvali hvers notanda. Símnotandinn fær reikninga fyrir símtölum sem veljast í föstu forvali frá þjónustuveitanda.

Þrátt fyrir að hafa gert samning um fast forval við þjónustuveitanda geta símnotendur valið annan þjónustuveitanda með því að velja forskeyti hans á undan 00.

Þjónustuveitendur sem gera samning við símnotendur um fast forval ber að upplýsa þá hvort læsing á símum þeirra vegna símtala til útlanda verði óvirk þegar föstu forvali er komið á.

Fréttatilkynning
Kópavogi, 3. apríl 2000.