Hoppa yfir valmynd

Kennt í fjarskiptarétti í fyrsta sinn hér á landi

Fréttasafn
02. september 2005

Kennt í fjarskiptarétti í fyrsta sinn hér á landi

Löfræðingar Póst- og fjarskiptastofnunar munu á haustönn 2005 kenna meistaranemum í lögfræði við Háskólann í Reykjavík meginreglur í fjarskiptarétti. Er þetta í fyrsta sinn að fjarskiptaréttur er kenndur við íslenskan háskóla.  Á námskeiðinu verður fjallað um tengsl fjarskiptaréttar og samkeppnisréttar og skoðað hvernig evrópskt laga- og regluverk hefur verið innleitt í íslensk lög.

Í námskeiðslýsingu segir m.a.:
Fjárskiptamarkaður er í örri þróun og það sama má segja um þær réttarreglur sem um hann gilda. Markaðurinn hefur þá sérstöðu, að á honum ríkti einkaréttur allt fram til ársins 1998. Þegar samkeppni var gefin frjáls höfðu fyrrum einkaréttarhafar yfirburðastöðu á markaði, bæði vegna mikillar markaðshlutdeildar og ómissandi aðstöðu eins og fjarskiptanet, sem nýjum fyrirtækjum var ómögulegt að koma sér upp. Til þess að gefa nýjum fyrirtækjum möguleika á að koma inn á markað þurfti að mæla fyrir um aðgang að fjarskiptanetum fyrrum einkaréttarhafa. Evrópusambandið innleiddi af þeim sökum löggjöf, sem ætlað var að stuðla að samkeppni í fjarskiptum á innri markaði ESB og er mikil áhersla lögð á samræmda innleiðingu og framkvæmd hennar í aðildarríkjum.

Námskeiðið í fjarskiptarétti er þrjár einingar og verður m.a. farið yfir verklag við greiningu á fjarskiptamarkaði og þau úrræði sem kveðið er á um í lögum til að efla samkeppni og tryggja jafnræði.

Kennarar eru Sigurjón Ingvason forstöðumaður lagadeildar PFS, Friðrik Pétursson forstöðumaður þjónustudeildar og Jóhanna H. Halldórsdóttir.

Háskólinn í Reykjavík býður í haust í fyrsta sinn upp á meistaranám í lögum. Nemendur geta valið um áherslur og námsleiðir og sérhæft sig á ýmsum sviðum.