Hoppa yfir valmynd

Íslendingar greiða lægstu gjöld fyrir heimilissíma samkvæmt nýrri OECD-skýrslu

Fréttasafn
06. september 2005

Íslendingar greiða lægstu gjöld fyrir heimilissíma samkvæmt nýrri OECD-skýrslu

Í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um fjarskipti kemur fram að Íslendingar greiða enn lægstu gjöldin fyrir heimilissíma ef miðað er við kaupgetu, eða um þriðjung af því sem símnotendur greiða almennt í dýrustu OECD-ríkjunum. Er þá miðað við meðalnotkun þegar hringt er innanlands, milli landa og í farsíma. Sjá nánar um samanburð á gjöldum fyrir símnotkun.

OECD birtir einnig lista yfir verð fyrir ADSL-notkun í flestum aðildarríkjum, en þar sem aðferðarfræði er enn í mótun liggur ekki fyrir samanburður í töflum.

Sjá nýja skýrslu OECD um fjarskipti

Sjá gjaldskrá og kannanir