Ákvörðun PFS: Ekkert fyrirtæki útnefnt með umtalsverðan markaðsstyrk á markaði 18
Ákvörðun PFS: Ekkert fyrirtæki útnefnt með umtalsverðan markaðsstyrk á markaði 18
Póst- og fjarskiptastofnun hefur lokið markaðsgreiningu á markaði 18, heildsölumarkaði fyrir útsendingarþjónustu fyrir útvarpsþjónustu til notenda og birt ákvörðun sína nr. 31/2008, um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk á markaðnum.
Niðurstaða PFS er að ekkert fyrirtæki á þessum markaði var útnefnt með umtalsverðan markaðsstyrk á þessum markaði og því engar kvaðir lagðar á fyrirtæki.
Forsendur niðurstöðunnar:
PFS telur eðlilegt að skilgreina fimm mismunandi þjónustumarkaði fyrir útsendingarþjónustu fyrir útvarpsþjónustu til notenda, sbr. neðangreint:
- Útsendingarþjónusta fyrir hliðrænt hljóðvarp á þráðlausum netum.
- Útsendingarþjónusta fyrir hliðrænt sjónvarp á þráðlausum netum.
- Útsendingarþjónusta fyrir stafrænt hljóðvarp og sjónvarp á þráðlausum netum.
- Útsendingarþjónusta fyrir stafrænt hljóðvarp og sjónvarp á fastanetum.
- Útsendingarþjónusta fyrir starfrænt hljóðvarp og sjónvarp um gervihnött.
PFS telur að síðastgreindur markaður, útsendingarþjónusta um gervihnött, sé millilandamarkaður sem ekki sé á valdi PFS að taka til greiningar. PFS tók hina fjóra þjónustumarkaðina til skoðunar með það fyrir augum að leiða í ljós hvort þeir uppfylltu skilyrði þess að til greina kæmi að leggja fyrirfram (ex ante) kvaðir á fyrirtæki á þeim mörkuðum. Til að það sé heimilt þurfa viðkomandi markaðir að uppfylla þrjú skilyrði (e. three critera test). Skilyrðin eru eftirfarandi:
- Hindranir eru á því að komast inn á markaðinn
- Markaðurinn hefur ekki eiginleika til að þar sé virk samkeppni
- Almennar samkeppnisreglur duga ekki til að afnema hindranir eða efla samkeppni
Niðurstaða PFS var á þá leið að ofangreindir fjórir markaðir fyrir útsendingarþjónustu uppfylltu ekki ofangreind þrjú skilyrði svo að til greina komi að leggja fyrirfram kvaðir á fyrirtæki á viðkomandi mörkuðum. Þar af leiðandi hyggst PFS ekki útnefna neitt fyrirtæki með umtalsverðan markaðsstyrk á viðkomandi mörkuðum. Þar sem ekkert fyrirtæki er útnefnt með umtalsverðan markaðsstyrk á viðkomandi mörkuðum verða engar kvaðir lagðar á þau.
Ákvörðun PFS nr. 31/2008 (PDF)
Viðauki A - Greining á markaði 18 (PDF)
Viðauki B - Athugasemdir hagsmunaaðila og niðurstöður samráðs(PDF)
Viðauki C - Álit Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) (PDF)
Nánar um markaðsgreiningu hér á vefnum