Samráð um markaðsgreiningu á mörkuðum 1 - 6
Samráð um markaðsgreiningu á mörkuðum 1 - 6
PFS hefur sent hagsmunaaðilum til umsagnar frumdrög að markaðsgreiningu á mörkuðum 1 - 6, þ.e. smásölumörkuðum fyrir aðgang að almennu talsímaneti og almenna talsímaþjónustu á fastaneti.
PFS mun endurskoða markaðsgreininguna með hliðsjón af þeim athugasemdum sem berast áður en greiningin er send Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) til samráðs. Að teknu tilliti til umsagnar ESA verður ákvörðun stofnunarinnar birt hlutaðeigandi fyrirtækjum.
Póst- og fjarskiptastofnun hefur greint samkeppni á smásölumörkuðum fyrir aðgang að almennu talsímaneti og almenna talsímaþjónustu á fastaneti, markaðir 1-6. Frumdrög greiningar og niðurstaða PFS um framangreinda markaði eru nú lögð fram til samráðs og PFS býður fjarskiptafyrirtækjum og öðrum sem áhuga hafa á að gera athugasemdir við þau, sbr. 6. gr. laga nr. 69/2003, um Póst- og fjarskiptastofnun.