Hoppa yfir valmynd

Óvissustigi vegna öryggisgalla í Log4j aflétt

Fréttasafn
27. desember 2021

Óvissustigi vegna öryggisgalla í Log4j aflétt

Mynd með frétt

Ríkislögreglustjóri í samráði við netöryggissveit CERT-IS og Fjarskiptastofu aflétta óvissustigi almannavarna vegna Log4j veikleikans. Allir ómissandi innviðir og þjónusta starfa eðlilega og eru ekki skert eða takmörkuð. Rekstraraðilar kerfa hafa brugðist vel við undanfarnar vikur og náð tökum á veikleikanum.

Ekkert atvik hefur verið tilkynnt þar sem brotist hefur verið inn í kerfi með Log4j veikleikanum. Fylgst verður áfram náið með kerfum og hegðun þeirra ásamt þróun veikleikans á heimsvísu og hvaða áhrif hún gæti haft. Rekstraraðilar eru hvattir til að vakta kerfi sín sérstaklega og fylgjast með óeðlilegri hegðun sem og nýjum uppfærslum á Log4j kóðasafni.

Frekari upplýsingar veita: Guðmundur Arnar Sigmundsson, sviðsstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS, gudmundur@fjarskiptastofa.is eða Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu, hrafnkell@fjarskiptastofa.is