Samráð um breytingar á skilyrðum tíðniheimilda
Samráð um breytingar á skilyrðum tíðniheimilda
Fjarskiptastofa efnir til samráðs um breytingar á skilyrðum tíðniheimilda. Um er að ræða tíðniheimildir Nova, Símans og Sýnar, fyrir ýmis tíðnisvið fyrir farnetsþjónustu, sem gefnar voru út árið 2023 og tíðniheimild Öryggisfjarskipta á 700 MHz tíðnisviði fyrir neyðar og öryggiskerfi sem gefin var út árið 2022.
Í nefndum tíðniheimildum voru ýmis skilyrði varðandi nýtingu tíðnanna og útbreiðslu þjónustu. Þau skilyrði sem nú eru til skoðunar lúta að slitlausu háhraða farnetssambandi á stofnvegum og tímaramma fyrir uppbyggingu neyðar- og öryggiskerfis.
Tilefni samráðsins er að fjármögnun á þætti Öryggisfjarskipta í stofnvegaverkefninu og uppbyggingu neyðar- og öryggiskerfis liggur ekki fyrir. Öryggisfjarskiptum hefur því reynst ókleift að standa við skilyrði í tíðniheimild sinni. Skilyrði um þátttöku Öryggisfjarskipta í stofnvegaverkefninu snertir alla tíðnirétthafana þar sem ætlunin var að Öryggisfjarskipti leggðu til óvirka innviði við stofnvegi, sem hin félögin myndu síðan nýta til að koma upp sendabúnaði.
Töluverður árangur hefur náðst nú þegar varðandi útbreiðslu á stofnvegum, en fyrirséð er að skortur á fjármögnun á verkefnum Öryggisfjarskipta mun leiða til tafa á frekari uppbyggingu. Ljóst er orðið að verulegur dráttur verður á því að Öryggisfjarskipti geti byggt upp nýtt neyðar- og öryggiskerfi. Fjarskiptastofa telur mikilvægt að 700 MHz tíðnisviðið verði til reiðu þegar ráðist verður í uppbyggingu nýs neyðar- og öryggiskerfis og telur því æskilegt að fyrirtækið haldi heimildinni að svo stöddu en fái tilslakanir á skilyrðum.
Fjarskiptastofa hyggst af ofangreindum orsökum seinka hluta tímaramma stofnvegaverkefnis gagnvart farnetsfyrirtækjum. Lagt verður mat á stöðu verkefnisins að nýju að ári liðnu og ef ekkert fjármagn verður þá í augsýn fyrir hluta Öryggisfjarskipta, þá er viðbúið að ráðast þurfi í efnislegar breytingar á umfangi verkefnisins, sem getur leitt til þess að þjónusta á stofnvegum verði ekki eins góð og að var stefnt.
Fjarskiptastofa óskar eftir sjónarmiðum allra sem telja sig hafa hagsmuni tengda þessu málefni. Þess er óskað að umsagnir berist FST eigi síðar en 31. janúar 2025.
Tekið er við skriflegum umsögnum á fjarskiptastofa(hjá)fjarskiptastofa.is og nánari upplýsingar veitir Sigurjón Ingvason, sigurjon(hjá)fjarskiptastofa.is