Fjarskipastofa efnir til samráðs um tilmæli vegna prófunar farsíma
Fjarskipastofa efnir til samráðs um tilmæli vegna prófunar farsíma
Fjarskiptastofa efnir til samráðs um drög að tilmælum um prófun innflytjenda og söluaðila á virkni farsíma áður en þeir eru settir á markað á Íslandi.
Fjarskiptastofa fer með eftirlit með framkvæmd laga um fjarskipti nr. 70/2022 og þ.m.t. að ákvæði 96. gr. laganna um neyðarsamskipti og flutning neyðarsímtala í númerið 112 sé uppfyllt.
Eftir lokun 2G- og 3G-farsímakerfanna hér á landi hefur komið í ljós að einhverjir farsímar eru ekki að ná tengingu við neyðarnúmerið 112 þrátt fyrir að þessi sömu tæki styðji að öðru leyti almenna farsímaþjónustu og fullnægi reglum um CE-merkingu. Ástæða þessa getur tengst t.d. hugbúnaðarútgáfum farsímanna, stillingum þeirra eða samspili farsíma og farsímanets.
Vegna þessa hefur Fjarskiptastofa sett saman drög að tilmælum um prófun allra farsíma sem seldir verða hér á landi framvegis. Fjarskiptastofa skorar á alla þá sem telja sig mál þetta varða að koma með athugasemdir við drögin og það sem betur mætti fara.
Senda skal umsagnir á netfangið fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is og er umsagnarfrestur til föstudagsins 9. október nk.