Leiðbeiningar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
Leiðbeiningar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026
Fjarskiptastofa, Persónuvernd, Fjölmiðlanefnd, Landskjörstjórn, Ríkislögreglustjóri og CERT-IS hvetja almenning til að vera á varðbergi gagnvart upplýsingum og efni sem tengist þjóðaratkvæðisgreiðslunni 29. ágúst næstkomandi.
Þann 29. ágúst næstkomandi fer fram þjóðaratkvæðisgreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Í aðdraganda hennar mun almenningur verða fyrir miklu upplýsingaflæði, meðal annars á samfélagsmiðlum og öðrum stafrænum miðlum.
Ofangreindir aðilar hafa af því tilefni tekið saman tíu einföld atriði sem gott er að hafa í huga. Þau má sjá á meðfylgjandi mynd.
Fjarskiptastofa vill jafnframt minna á að óheimilt er að senda tölvupósta, SMS eða önnur rafræn skilaboð í markaðslegum tilgangi nema viðtakandi hafi veitt samþykki sitt fyrir slíkum fjarskiptum. Fjarskiptastofa hefur litið svo á að bein markaðssetning nái til þess þegar haft er samband við einstaklinga til að kynna tiltekin sjónarmið, hlutverk eða óska eftir stuðningi t.a.m. með greiðslu atkvæðis í kosningum.
Markmiðið er ekki að segja fólki hvað það eigi að kjósa, heldur að stuðla að því að fólk geti tekið sjálfstæða og upplýsta afstöðu á grundvelli áreiðanlegra upplýsinga.
Verum upplýst. Verum gagnrýnin. Og verum meðvituð um það efni sem við sjáum og deilum í aðdraganda kosninganna.