Leiðbeiningar til farsímafyrirtækja vegna flutnings símtala í númerið í 112
Leiðbeiningar til farsímafyrirtækja vegna flutnings símtala í númerið í 112
Númerið 112 er sameiginlegt neyðarnúmer evrópska efnahagssvæðisins (EES). Hægt er að hringja í númerið notendum kostnaðarlausu úr bæði heimasímum og farsímum, hvar sem er innan EES-svæðisins. Á Íslandi er 112 rekið af Neyðarlínunni og veitir aðgang að öllum helstu viðbragðsaðilum, s.s. lögreglu, slökkviliði og sjúkraflutningum, allan sólarhringinn. Um neyðarnúmerið er fjallað um í evrópsku fjarskiptaregluverki (Kóðinn) sem innleitt er með fjarskiptalögum nr. 70/2022.
Fjarskiptastofa hefur umsjón með fjarskiptum á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í því að tryggja að fjarskiptakerfi landsins séu örugg, áreiðanleg og tilbúin þegar á reynir. Stofnunin hefur sent út fjölda fréttatilkynninga um að verið sé að fasa út eldri kerfi farneta (2G og 3G), hjá farsímafyrirtækjunum þremur sem reka farnetsþjónustu á Íslandi; Nova, Símanum og Sýn (farsímafyrirtækin).
Afar mikilvægt er að almenningur og fyrirtæki tryggi að kerfi og tæki sem nýta farnet séu samhæfð nýjustu tækni. Við þessa umbreytingu þarf að huga að aðgengi landsmanna að neyðarfjarskiptum en um það er fjallað um í 96. gr. fjarskiptalaga. Þar segir að fjarskiptafyrirtækjum er skylt að flytja símtal í númerið 112, ásamt viðeigandi fjarskiptaumferðarupplýsingum, óháð því hvort notandinn sé staðsettur á þjónustusvæði síns fjarskiptafyrirtækis.
Ábendingar frá farsímafyrirtækjunum og Neyðarlínunni til Fjarskiptastofu, sem og reynsla annarra ríkja af útfösun þessara kerfa, gefa til kynna ýmis tæknileg vandkvæði sem geta torveldað aðgengi að neyðarfjarskiptum eftir að eldri farnetskerfi verða óvirk. Fjarskiptastofa hefur því haft til sérstakrar skoðunar hugsanleg áhrif lokunar á neyðarfjarskipti, enda er það lykilatriði að almenningur geti náð sambandi við neyðarþjónustu í gegnum neyðarnúmer 112 og tryggt sé aðgengi að neyðar- og öryggisþjónustu.
Ef stór hópur endanotenda getur ekki hringt talsímtöl til 112 skapar það alvarlega ógn við almannaöryggi og heilsu og getur valdið verulegum vandamálum fyrir notendur fjarskiptaþjónustu. Farsímafyrirtækin þurfa að grípa mótvægisaðgerða, eins og kostur er, til að koma í veg fyrir að slíkar aðstæður raungerist.
Til að gæta að þessu hefur Fjarskiptastofa samið leiðbeiningar sem að farsímafyrirtækin geta haft til hliðsjónar við útfösun á eldri farnetskerfum. Tilgangur þeirra er að leiðbeina farsímafyrirtækjunum m.a. um upplýsingagjöf svo að viðskiptavinir þeirra geti eftir sem áður náð sambandi við númerið 112 eftir að eldri farnetskerfi verða tekin úr notkun. Þá er leiðbeiningunum einnig ætlað að hvetja farsímafyrirtækin að aðstoða viðskiptavini sína eins og kostur er við þessa umbreytingu.