Hoppa yfir valmynd

Samráð við ESA um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026

Fréttasafn
18. september 2026

Samráð við ESA um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026

Í dag sendi Fjarskiptastofa ákvörðunardrög varðandi ákvörðun um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026 til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).

Í meðfylgjandi drögum er forsendum og aðferðafræði hvernig vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) er ákvarðað.

Frumdrög að ákvörðun um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026 fór í innanlandssamráð sem stóð frá 13. júlí til 17. ágúst 2026. Athugasemdir bárust frá Ljósleiðaranum ehf.

Í viðauka I má finna athugasemdir Ljósleiðarans ehf. í heild sinni, og í viðauka II má finna helstu athugasemdir Ljósleiðarans ehf. ásamt afstöðu Fjarskiptastofu. Fjarskiptastofa telur að þær athugasemdir sem komu fram í innanlandssamráðinu kalli ekki á breytingar á fyrirhugaðri niðurstöðu Fjarskiptastofu um vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026.

Ákvörðunardrögin hafa nú verið send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs með vísan til 28. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu og tilmæla ESA frá 2025 um slíkt samráð. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur Fjarskiptastofa formlega tekið ákvörðun nema fram komi óskir frá ESA um að Fjarskiptastofa dragi ákvörðunardrögin til baka. Ekki er gert ráð fyrir því að innlendir hagsmunaaðilar geri athugasemdir við ákvörðunardrögin að þessu sinni.

Skjöl sem send voru til ESA:

Weighted Average Cost of Capital (WACC) for 2026.pdf
Appendix I Comments from national consultation.pdf
Appendix II Main views of parties to national consultation and the position of ECOI.pdf

Íslenks útgáfa af skjölum sem send voru til ESA:

Vegið meðaltal fjármagnskostnaðar (WACC) fyrir árið 2026 (1).pdf
Viðauki I Athugasemdir úr samráði Fjarskiptastofu WACC 2026.pdf
Viðauki II Helstu sjónarmið aðila í innanlandssamráði og afstaða Fjarskiptastofu.pdf