Hoppa yfir valmynd

Um Fjarskiptastofu

Meginhlutverk Fjarskiptastofu er að tryggja hagkvæma, örugga og aðgengilega fjarskiptaþjónustu fyrir alla landsmenn.

Áhersla er á þróun fjarskiptamarkaðarins og eflingu samkeppni, með aukinni áherslu á innleiðingu nýrrar tækni á hagkvæman hátt.

Skrifstofa

FjarskiptastofaKennitala:  570397-2499

Suðurlandsbraut 4

Sími:  +354 510 1500

108 Reykjavík

Netfang: 
fjarskiptastofa@fjarskiptastofa.is

Afgreiðslutími:  Mánudaga -
föstudaga kl. 10:00 - 14:00

Skipulag

Skipurit Fjarskiptastofu

Forstjóri Fjarskiptastofu er Hrafnkell V. Gíslason

Framkvæmdastjórn er skipuð forstjóra og sviðsstjórum.

Fagleg teymi innan Fjarskiptastofu eru t.a.m. vinnuhópar um markaðsgreiningar

Fjarskiptainnviðasvið
Fjarskiptainnviðasvið ber ábyrgð á skipulagi auðlinda fjarskipta (tíðna og númera) og úthlutun heimilda fyrir þær auðlindir. Einnig viðhefur sviðið eftirlit með ljósvakanum sem felur í sér mælingar, viðbragð og úrvinnslu truflana. Með kortlagningu og greiningum á núverandi og áætlunum innviðum fjarskipta og tengdum innviðum stuðlar sviðið að uppbyggingu innviða í samstarfi við stjórnvöld og markaðsaðila.

Netöryggissvið
Í verkefnum netöryggissviðs hjá Fjarskiptastofu felst áfram m.a. áhættumiðað og fyrirbyggjandi eftirlit með stjórnkerfi net- og upplýsingaöryggis hjá tilgreindum mikilvægum innviðum á sviðum fjarskipta, hjá veitendum stafrænnar þjónustu og hjá stafrænum grunnvirkjum. Þá framkvæmir sviðið almenn og sértæk áhættumöt á sviði netöryggis, framkvæmir getumat aðila, prófanir á netvörnum aðila, skoðanir atvika og gefur fyrirmæli um úrbætur. Þá leiðir sviðið samstarf eftirlitsstjórnvalda á þessu sviði, tekur þátt í evrópsku samstarfi á sviði stefnumótunar netöryggis, og nefndastarfi NATO á sviði áfallaþols fjarskiptaþjónustu og -neta. Auk netöryggis sinnir sviðið einnig eftirliti með traustþjónustum og er samhæfingaraðili Eyvarar, hæfnisseturs Íslands á sviði netöryggis.

Rekstrarsvið
Hlutverk rekstrarsviðs er að tryggja samfelldan og straumlínulagaðan rekstur og að hann sé samkvæmt vottuðum gæðaferlum stofnunarinnar.

Stjórnsýslusvið
Stjórnsýslusvið samræmir stjórnsýslumál stofnunarinnar ásamt því að leiða samkeppnis- og neytendamál.  Innan sviðsins fara fram markaðsgreiningar ásamt álagningu kvaða á þá aðila markaðarins sem hafa umtalsverða markaðshlutdeild.

Gjaldskrá Fjarskiptastofu

Fjarskiptastofa sér um innheimtu ýmissa gjalda sem tengjast fjarskiptarekstri, svo sem rekstrar- og leyfisgjöld, skv. 21. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu.

Gjaldskra PFS nr. 1115/2006

Breyting á gjaldskrá dags 1. júní 2007 (Gjald fyrir skráningu á Kennimarki viðfangs )

Auk þeirra gjalda sem tilgreind eru í gjaldskrám hér fyrir ofan innheimtir stofnunin tíðnigjöld þau sem tiltekin eru í 22. gr. í fyrrnefndum lögum.