- Fjarskiptastofa
- Fjarskiptainnviðir
- Skipa- og flugfjarskipti
- Skráð fjarskiptafyrirtæki
- Fjarskiptatæki og búnaður
- Tíðnimál
- Farsímanet
- Truflanir á farsímasambandi
- Skráningar og leyfi
- Númer og vistföng
- Radíóamatörar
- Fyrirhugaðar jarðvegsframkvæmdir
- Ljósleiðarauppbygging og ríkisstyrkir
- Fjarskiptalagnir í íbúðarhúsnæði
- Gervihnattaþjónusta
- Vefsjá Fjarskiptastofu
- Upplýsingar fyrir neytendur
Upplýsingar fyrir notendur
Alþjónusta
Allir eiga rétt á tiltekinni lágmarksþjónustu - Sjá um alþjónustu
Val á fjarskiptafyrirtæki
Neytendur geta valið á milli fjarskiptafyrirtækja. Fjarskiptafyrirtækjum með umtalsverða markaðshlutdeild í fjarskiptanetum, svo sem Símanum og Vodafone, er skylt að verða við réttmætum og sanngjörnum beiðnum annarra fjarskiptafyrirtækja um aðgang að heimtaugum. Aðgangur að heimtaugum þessara fyrirtækja eykur möguleika annarra fjarskiptafyrirtækja til að selja neytendum áskrift að fastasíma/heimasíma.
Farsímareiki á EES svæðinu
Athugið að Bretland er utan EES.
Eftir 15. júní 2017 þarf ekki að að greiða sérstök reikigjöld þegar ferðast er til annars lands á EES svæðinu. Allir núverandi viðskiptavinir sem hafa hefðbundinn aðgang að reiki færast nú á þessi nýju viðskiptakjör sem ná yfir gagnaflutning, símtöl og SMS skeyti. Þetta gildir eingöngu innan EES-svæðisins og ekki þegar ferðast er til annarra landa.
Sjá upplýsingar um EES á vef stjórnarráðsins.
Upplýsingarnar hér eiga ekki við þegar ferðast er til landa utan EES-svæðisins. Kynntu þér upplýsingar um farsímanotkun á ferðalögum utan EES-landanna hér fyrir neðan.
Spurningar og svör um farsímareiki á EES svæðinu
Engin þök eru sett á sanngjörn not símtala og SMS skeyta. Viðskiptavinum í slíkum þjónustuleiðum er heimilt að hringja og senda SMS án nokkra takmarkana eða sérstaks álags á reikinotkun á meðan notkun er vegna eðlilegra ferðalaga.
Farsímareiki utan EES svæðisins
Athugið að Bretland er utan EES.
Mikill munur getur verið á gjaldskrám fyrir síma- og netnotkun erlendis og heima fyrir. Því er rík ástæða til að kynna sér vel verð fyrir reikiþjónustu og aðra fjarskiptaþjónustu í því landi sem ferðast er til.
Með orðinu reiki er átt við það þegar farsíma- eða tölvunotandi sem er í viðskiptum við ákveðinn þjónustuaðila fær aðgang að síma- og/eða netkerfum annarra þjónustuaðila.
Alþjóðlegt reiki er þegar aðgangur er veittur að síma- og/eða netkerfum þjónustuaðila í öðru landi.
ATH: Innan EES-svæðisins falla sérstök reikigjöld niður frá 15. júní 2017 fyrir íbúa landanna á svæðinu.
Kynnið ykkur upplýsingar á vefsíðum farsímafyrirtækjanna
Símafyrirtækin eru með upplýsingar um farsímanotkun erlendis á vefsíðum sínum. Hér fyrir neðan eru tenglar á viðkomandi vefsíður hjá fyrirtækjunum.
Spurningar og svör um farsímareiki utan EES svæðisins
Sá sem hringir frá Íslandi í farsímanotanda með íslenskt númer sem staddur er í útlöndum greiðir skv. innanlandsgjaldskrá síns fjarskiptafyrirtækis en sá sem tekur á móti símtalinu greiðir samkvæmt útlandagjaldskrá síns fjarskiptafyrirtækis.
Því greiðir farsímanotandi í útlöndum bæði fyrir þau símtöl sem hann hringir sjálfur og þau símtöl sem honum berast. Athugið þó að gjaldið er lægra fyrir móttekin símtöl en þegar hringt er heim.
Öll símtöl fara í gegnum símgátt þjónustufyrirtækis á Íslandi og því jafngildir það millilandasímtali ef hringt er í vin eða ættingja sem er með notandanum á ferðalagi og eru með honum í vinaáskrift.
Gjaldskrá þess fyrirtækis sem íslenska símafyrirtækið hefur gert reikisamning við gildir fyrir alla símnotkun að viðbættu 20 %þjónustugjaldi og 24,5% virðisaukaskatti. Það kostar því töluvert meira að hringja erlendis frá til Íslands, en það kostar að hringja innanlands.
Talhólf
Farsímanotandi sem er í útlöndum greiðir fyrir símtöl sem enda í talhólfinu hans eins og um móttekin símtöl sé að ræða.
CE merkingar - Kaup á tækjum
Margir freistast til að kaupa sér ódýr fjarskipta- og rafmagnstæki á erlendis frá, í gegnum netið eða á ferðalögum. Dæmi um þetta eru farsímar, spjaldtölvur, leikföng, fjarstýrðar læsingar o.s.frv.
Fjarskiptabúnaður þarf hins vegar að uppfylla kröfur sem gilda á evrópska efnahagssvæðinu til þess að nota megi hann hér á landi. Fjarskiptatæki sem eru almennt í notkun í löndum utan Evrópu geta því verið ólögleg hér á landi.
Ef fjarskiptabúnaður er í fullu samræmi við kröfu á EES svæðinu er hann CE-merktur.
Góð ráð áður en fjárfest er í fjarskiptatæki til nota hér á landi
Öll fjarskiptatæki eiga að vera CE-merkt. Ef þau eru það ekki, eru þau ólögleg á Íslandi.
CE-merkið skal vera greinilegt á umbúðum og á tækjunum. Að auki skal tækið vera merkt með framleiðslunúmeri.
Ofangreint á við, hvort heldur tækin eru keypt á Íslandi, erlendis eða koma til landsins sem gjöf, t.d. frá ættingjum.
Ofangreint á einnig við ef tækin eru keypt á netinu.
Athuga þarf hvort hvort afla þurfi tilskilinna leyfa til að nota tækið á Íslandi.
Dæmi um búnað sem er skilgreindur sem fjarskiptatæki og skal vera CE-merktur:
Farsímar
Handtalstöðvar (Walkie-talkie)
Þráðlaus vaktbúnaður í barnavagna
Þráðlausir hljóðnemar
Fjarstýrðar bílskúrslæsingar
Ýmis símatæki og mótöld.
Fjarstýrð leikföng
Útvarpstæki
Búnaður fyrir þráðlausar tengingar við Internetið
Radarvarar
GPS -Búnaður
Munið
Öll fjarskiptatæki verða að vera CE-merkt. Tæki, sem ekki eru CE-merkt, eru ólögleg hér á landi.